Ég hef alltaf talið mig heppinn að hafa alist upp og eiga heima í Vestmannaeyjum. Hér hef ég byggt upp fjölskyldu mína, hér hef ég unnið mín verk og hér á ég heima. Ég er giftur, tveggja barna faðir og afi nokkurra barnabarna – og þau eru ótrúleg blessun í mínu lífi. Og það er ekki ofsagt þegar ég segi að allt sem ég geri í þessum málum – geri ég fyrir þau líka.
Á undanförnu kjörtímabili hef ég starfað sem oddviti í minnihlutanum. Það hefur verið erfitt stundum, en gefandi. Ég hef lært að það skiptir öllu að vinna málefnalega, hlusta á sjónarmið annarra og standa fastur við það sem ég tel að sé rétt. Ég hef séð hvað það þýðir að berjast fyrir bæjarbúa, jafnvel þótt það rati ekki í fyrirsagnir á miðlunum.
Í gegnum þessi ár hef ég fundið hvernig traustið hefur vaxið – hægt og rólega. Við í minnihlutanum höfum unnið okkar vinnu af samviskusemi, bent á það sem betur má fara, og staðið með málefnum sem skipta Eyjamenn máli. Þetta hefur verið okkar leið til að sýna að við erum traustsins verð.
Prófkjör styrkja flokkinn. Þau skapa umræðu, virkja fólk og tryggja að við séum með breiðari sýn á bæjarmálin. Samtal um framtíðina, áskoranirnar og tækifærin sem við stöndum frammi fyrir. Ég ákvað að stíga fram í þetta prófkjör vegna þess að mér þykir vænt um samfélagið okkar, og vegna þess að ég tel að við getum saman, tekið næstu skref í að styrkja Vestmannaeyjar til framtíðar.
Við lifum á tímum þar sem margt breytist hratt. Því skiptir máli að hafa fólk í fararbroddi sem skilur grunnstoðir samfélagsins okkar en þorir líka að horfa fram á við. Ég kem úr atvinnulífinu, þar sem ákvarðanir hafa raunveruleg áhrif á fólk, og þar sem lausnir þurfa að virka – ekki nóg að hljóma vel. Þá nálgun vil ég færa enn frekar með mér inn í pólitíska umræðu í Eyjum.
Vestmannaeyjar búa yfir ótrúlegum styrkleikum. Við stöndum frammi fyrir verkefnum sem skipta máli. Að tryggja trausta innviði, halda atvinnulífinu sterku, stuðla að nýsköpun, og skapa framtíðarsýn sem fær ungt fólk til að vilja búa hér, vinna hér og ala hér upp fjölskyldur sínar. Þetta eru lífsgæði okkar, framtíð barna okkar.
Ég trúi á Vestmannaeyjar. Ég trúi á kraftinn í samfélaginu okkar. Og ég trúi því að með réttum áherslum getum við tryggt að mannlífið blómstri – nú og til framtíðar.
Ég er ekki að bjóða mig fram vegna þess að ég tel mig betri en aðrir. Ég er að bjóða mig fram vegna þess að ég vil leggja mitt af mörkum. Ég er tilbúinn að axla ábyrgð, taka ákvarðanir og leggja mig 100% fram.
Næstu vikur ætla ég að hitta sem flesta. Ég hlakka til að heyra hvað skiptir ykkur máli. Ég hlakka til að ræða það sem við getum gert betur, og það sem við eigum að halda áfram að byggja á. Eitt er víst, það getur enginn gert þetta einn, en saman getum við gert ótrúlega hluti.
Eyþór Harðarson
Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.