Fjórir af tíu þingmönnum Suðurkjördæmis koma úr röðum Sjálfstæðisflokksins. Talningu lauk snemma í morgun og var kjörsókn um 78,5%.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 31,5 prósent atkvæða, Framsóknarflokkurinn hlaut rúm 19 prósent og tvo þingmenn, Píratar fengu 12,8 prósent og einn þingmann eins og Viðreisn sem hlaut 7,3 prósent atkvæða. Formaður Samfylkingar hlýtur jöfnunarþingsætið í kjördæminu en flokkurinn hlaut 6,4 prósenta fylgi.
�?ingmenn Suðurkjördæmis á komandi þingi eru eftirfarandi:
1. Páll Magnússon, Sjálfstæðisflokkur
2. Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokkur
3. Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokkur
4. Smári McCarthy, Píratar
5. Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokkur
6. Ari Trausti Guðmundsson, Vinstri græn
7. Silja Dögg Gunnarsdóttir, Framsóknarflokkur
8. Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokkur
9. Jóna Sólveig Elínardóttir, Viðreisn
Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, hlýtur jöfnunarþingsætið í kjördæminu.