Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Í brúnni á Þórunni í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 hefur nú lagt úr höfn í Vestmannaeyjum áleiðis til Færeyja, þar sem skipið verður afhent nýjum eigendum, Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Greint er frá þessu á vef Vinnslustöðvarinnar í dag. Fréttina má lesa hér að neðan.

Það voru stór tímamót í útgerðarsögu Vestmannaeyja í dag, sunnudaginn 22. mars 2026, þegar Þórunn Sveinsdóttir VE 401 lagði í hann áleiðis til Færeyja, þar sem skipið verður afhent nýjum eigendum, Loðnuvinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði.

Við komuna til Færeyja fer skipið í slipp og verður þá strax afhent Loðnuvinnslunni. Til stendur að taka upp gír skipsins sem mun jafnframt fá nafnið Ljósafell SU 70.

Þórunn Sveinsdóttir VE hefur verið hluti af flota VSV í tæp 3 ár eða frá árinu2023, þegar VSV keypti Útgerðarfélagið Ós ehf. Skipið hefur í alla staði reynst vel og skilað góðum afla. Auk venjulegra veiða, hefur Þórunn sinnt rannsóknarverkefnum fyrir Hafrannsóknarstofnun, bæði að hausti og vori.

Útgerðarfélagið Ós ehf var stofnað árið 1969 af feðgunum Óskari Matthíassyni og Sigurjóni Óskarssyni og fjölskyldum þeirra. Útgerðarsaga þeirra er hins vegar talsvert lengri og nær aftur til ársins 1946, þegar Óskar Matthíasson keypti fyrsta bát sinn, Nönnu VE 300.

Útgerð fyrstu Þórunnar Sveinsdóttur VE, sem var vertíðabátur, hófst árið 1971 þegar hún kom nýsmíðuð frá Stálvík í Garðabæ. Árið 1991 kom önnur nýsmíði Ós til Eyja, skuttogari smíðaður á Akureyri, sem bæði var gerður út á sjófrystingu og ísfisk. Þriðja skipið, sem nú kveður Eyjaflotann var svo smíðað fyrir Ós árið 2010 í Danmörku, öflugt og nútímalegt skip sem enn stenst samanburð við nýrri skip.

Útgerðar- og skipstjórnarsaga Sigurjóns Óskarssonar er einstök saga velgengni og gæfu. Sigurjón aflaði ávallt vel og var ellefu sinnum aflahæstur á vetrarvertíð í Vestmannaeyjum. En gæfa hans felst þó jafnvel ennfremur í því að hafa á ferli sínum bjargað áhöfnum 4 skipa, alls 27 mönnum.

Það er eftirsjá að þessu góða skipi en um leið er gott að vita til þess að það verður í góðum höndum hjá þeim Fáskrúðsfirðingum. Vinnslustöðin óskar Loðnuvinnslunni til hamingju með skipið og megi gæfan fylgja því hér eftir sem hingað til!

Fleiri myndir frá því í dag má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.