Toppslagur Pepsídeildarinnar í 11. umferð fer fram á Hásteinsvelli í kvöld þegar ÍBV tekur á móti Keflavík. Liðin hafa bæði verið við og á toppnum í sumar en sem stendur er ÍBV í 2. sæti með 20 stig, eða jafnmörg og topplið Breiðabliks, á meðan Keflavík er í 3. sæti með 19 stig. Það má því búast við hörkuleik á Hásteinsvellinum klukkan 19.15 í kvöld.