Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og Hallgrímur Steinsson, framkvæmdastjóri, f.h. Sjálfbærs fiskeldis í Eyjum ehf., undirrituðu í dag samkomulag vegna fiskeldis í Viðlagafjöru á Heimaey. Um er að ræða fiskeldi á landi í Vestmannaeyjum þar sem megináhersla verður lögð á sjálfbærni, nýjungar og nýtingu. Gert er ráð fyrir að frummatsskýrsla umhverfismats verði tilbúin um næstu áramót. Vestmannaeyjabær hefur hafið skipulagsvinnu þar sem gert er ráð fyrir framangreindri starfsemi og áætlað er að þeirri vinnu ljúki um næstu áramót. Með samkomulaginu skuldbindur Vestmannaeyjabær sig til þess að úthluta lóð til félagsins á grundvelli samþykkts skipulags.
“Það er ánægjulegt að forráðamenn félagsins sjái tækifæri í nýrri atvinnuuppbyggingu í Vestmannaeyjum þar sem megináhersla er lögð á sjálfbærni og nýtingu og eru umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi. Ljóst er að með starfseminni mun störfum í Vestmannaeyjum fjölga, fyrst vegna framkvæmda og svo þegar rekstur félagsins hefst,” segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.