Vegagerðin hefur auglýst útboð á rekstri áætlunarflugs milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fyrir tímabilið 2026–2029. Flugið gegnir mikilvægu hlutverki í samgöngum við Eyjar, sérstaklega þegar veður hamlar siglingum, en í dag er einungis flogið frá byrjun desember og út febrúar. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er ekki gert ráð fyrir breytingum á því fyrirkomulagi. „Gert er ráð fyrir áætlunarflugi í þrjá mánuði á ári, eins og verið hefur,“ segir hann.
Samningurinn er til þriggja ára, frá 1. september 2026 til 30. nóvember 2029, með möguleika á framlengingu um allt að tvö ár. Verkefnið felur í sér bæði farþega- og vöruflug, þar sem rekstrarkostnaður verður endurgreiddur að frádregnum tekjum samkvæmt útboðsskilmálum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að útboðið sé auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.