Vangaveltur um sjávarútveg og sjómannadeiluna
Sæl verið þið sem nennið að lesa þetta . �?g ætla að kynna mig fyrir ykkur, ég heiti Gunnar og er búinn að vera á sjó síðan 1981 og verið stýrimaður frá 1989 og skipstjóri meira og minna frá 1996. Deilan sem sjómenn eiga í við SFS snýst um að Í síðustu samningum voru gerðar breytingar á skiptingu á milli sjómanna og útgerða. �?essar breytingar urðu til þess að sjómenn fengu ekki þá launahækkun sem þeim ber þegar fækkað er í áhöfn, það er að við aukið vinnuálag sem hlýst af því að vinnan lendir á færri höndum, skilar sér ekki í hærra kaupi heldur skilar það sér sem lægri heildarlaunakostnaður hjá útgerðinni. Deilan snýst engan vegin um gengi krónunnar, enda væri það að æra óstöðugan að ætla að sveiflast upp og niður með krónunni og það vita flest allir sjómenn. Að auki vilja sjómenn að eitthvað af þeim hagnaði sem útgerðin hefur lifað við á sama tíma og hún kærði sig ekki um að semja við okkur, verði notaður til að lækka fjarskipta kostnað okkar og til að bæta okkur upp tapið sem við urðum fyrir við afnám sjómannaafsláttar í sköttum, einnig til að lækka ofboðslegan kostnað sjómanna í hlífðarfatnaði. það er ekki verið að fara fram á að borga ekkert í olíunni heldur að olíverðs viðmið verði leiðrétt sem ákveður síðan prósentuna sem er dregin frá áður en kemur til skipta. �?að viðmið hefur aldrei verið leiðrétt með hliðsjón af meðal verðbólgu í heiminum. Til þess að skiptaprósenta geti hækkað hjá okkur þarf olía að lækka niður fyrir öll söguleg viðmið.
Síðast en ekki síst þá vilja sjómenn taka af þá vitleysu sem sett var á í síðustu samningum um að það megi lækka laun sjómanna um 10 prósent til að hjálpa útgerðinni að kaupa nýtt skip. Sjómenn fá samt sem áður enga eignarhlutdeild í skipinu, heldur skal útgerðarmaðurinn einn eiga það þrátt fyrir að áhöfnin greiði töluverðar fjárhæðir í skipinu. �?að væri gaman og gott fyrir umræðuna að fá að sjá útreikninga á því hve ríkissjóður og sveitafélög verða af miklum skattekjum við það að sjómenn á nýsmíðaskipum setja 10% eða sem nemur orlofi þeirra í styrk til útgerða sem síðan geta nýtt það allt til niðurgreiðslu á skipinu SÍNU án þess að greiða af því skatta.
Taktík SFS er sú sama og var alltaf hjá LÍ�?, sem er að snúa út úr öllu hjá sjómönnum og láta eins og við séum eintómir græðgis goggar og kjánar, síðan bíða þeir bara þar til ríkissjóður þolir ekki lengra verkfall og ríkisstjórnin grípur til lagasetningar til að stoppa verkfallið.
Íslendingar státa af því að vera eina þjóðin sem geri út sjávarútveg án ríkisstyrkja en raunin er sú að alþingi íslendinga setti í lög á sínum tíma að taka bæri 30% af heildar aflaverðmæti áður en kæmi til skipta við áhöfn. Mér finnst það ríflegur styrkur til útgerðar að ríkið verði af skatttekjum af þessum 30% aflaverðmætis, þannig má segja að íslenskur sjávarútvegur sé ekki aðeins ríkisstyrktur heldur líka sjómannastyrktur. Eins og hægt var að afnema skattaafslátt sjómanna með afnámi laga þá hlýtur að vera hægt að afnema þennan ríkisstyrk til útgerðarinnar með afnámi laga og gætu Íslendingar þá montað sig af því með sanni að reka sjávarútveg án ríkisstyrkja.
-Gunnar �?ór Friðriksson
Höfundur er skipstjóri og því ekki í verkfalli, því að hans félag samþykkti samningana.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.