Við hjá Eyjalistanum hörmum þá hagræðingu í starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) sem ráðist var í nú á dögunum. Ekki er langt síðan biðlað var til stjórnvalda af starfsfólki stofnunarinnar þar sem það taldi innviði hennar væru að springa. Niðurskurðurinn sem HSU hefur þurft að þola hefur verið mjög mikill og í staðinn fyrir að mæta auknum skilningi stjórnvalda og fá aukið fjármagn til heilbrigðismála er stofnuninni skylt að auka enn meir á niðurskurð, sem talinn var kominn að þolmörkum fyrr á þessu ári. �?að er einnig sárt að sjá að sú endurskipulagning sem farið var í leiðir af sér umfram uppsagnir starfsmanna, sumarlokun á fjórum sjúkrarúmum hér í Vestmannaeyjum. Hér er verið að skerða heilbrigðisþjónustu á þeim tíma þegar fjöldi ferðamanna er í hámarki og þegar íbúafjöldi Vestmannaeyja margfaldast vegna ýmissa bæjarhátíða og íþróttamóta.
�?ví miður kemur þessi stefnufesta stjórnvalda í niðurskurði til heilbrigðismála okkur í Vestmannaeyjum ekki á óvart. Mikið var vegið að heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum árið 2010 og enn héldu áfram óheyrilegar kröfur um aukinn niðurskurð sem leiddu m.a. til lokunar skurðstofunnar í Eyjum árið 2013. �?essi forkastanlegi niðurskurður hefur leitt til þess að verulega hefur dregið úr þjónustu heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum, vegið hefur að öryggi sjúklinga og kostnaður þeirra sem og aðstandenda hefur aukist til muna. Svo langt gengur andvaralaus afstaða ríkisvaldsins til heilbrigðismála í Vestmannaeyjum að einróma niðurstaða faghóps, sem m.a. var að Vestmannaeyjar skuli vera fæðingarstaður með bráðaaðgang að skurðstofu með svæfinga- og skurðlækni allan sólahringinn, eru hunsuð. �?etta sinnuleysi verður svo bersýnt þegar vitað er að faghópurinn var skipaður af ráðherra sjálfum.
Við hjá Eyjalistanum skorum á heilbrigðis- og fjármálaráðherra sem og núverandi þingmenn suðurkjördæmis að standa vörð um heilbrigðisþjónustu HSU og veita Vestmannaeyingum þá lágmarks grunnþjónustu sem ætti að teljast sjálfsögð.
Bæjarfulltrúar og stjórn E-listans.