Bæjarstjórnarfundur verður í dag kl. 18.00. Í sjálfu sér eru það ekki sérstök tíðindi, þar sem slíkir fundir eru jafnan haldnir mánaðarlega. Það eru þó tíðindi að fundurinn í dag verður eingöngu skipaður konum. Væntanlega er það í tilefni kvenréttindadagsins, 19. júní.