Vestmannaeyingar, Akureyringar og Eyfirðingar ánægðastir
9. febrúar, 2021

Vestmannaeyjar, Akureyri og Eyjafjörður eru þau svæði sem best koma út í heildarstigagjöf í nýrri skoðanakönnun meðal íbúa landsins á búsetuskilyrðum, hamingju og viðhorfi til síns sveitarfélags. Að könnuninni stóðu landshlutasamtök sveitarfélaga á landinu ásamt Byggðastofnun og var hún gerð á íslensku, ensku og pólsku í september og október síðastliðnum. Niðurstöðurnar byggja á svörum frá 10.253 þátttakendum. Þetta er í fyrsta sinn sem svo víðtæk könnun um þessi efni nær til allra svæða landsins og er markmiðið að hún verði eftirleiðis gerð á 2-3 ára fresti og geti verið sveitarfélögum og stjórnvöldum mikilvægt tæki í búsetu- og byggðaþróun.

Spurt um 40 búsetuþætti
Í könnuninni var landinu skipt upp í 24 svæði og annaðist Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri gerð úrtaks. Að könnuninni og úrvinnslu niðurstaðna unnu Vífill Karlsson, hagfræðingur og ráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Helga María Pétursdóttir, hagfræðingur og ráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Könnunin byggir á hliðstæðri íbúakönnun sem gerð var árið 2017 en könnunin nú var mun viðameiri, auk þess sem fyrri könnun náði ekki til allra svæða landsins. Á þeim svæðum sem báðar kannanirnar náðu til má í sumum tilfellum sjá viðhorfsbreytingar hjá íbúum á þessu tímabili.

Spurt var um 40 atriði sem snerta búsetuskilyrði. Sem dæmi um fjölbreytileika í efnisatriðum má nefna friðsæld, loftgæði, skólamál, atvinnuöryggi, launatekjur, húsnæðismál, nettengingar, vegakerfi, vöruverð, þjónustu við fatlaða og aldraða, rafmagn, ásýnd bæja og sveita, almenningssamgöngur og margt fleira. Efnisatriðin snúa því að samfélagsinnviðum sem og þjónustuþáttum á forræði ríkis og/eða sveitarfélaga.

Lægsta einkunn íbúa í Dölum og á sunnanverðum Vestfjörðum
Heildareinkunn var lægst í Dölum og á sunnanverðum Vestfjörðum. Í samanburði við önnur búsetusvæði landsins fá íþróttir (tækifæri til íþrótta/tómstundaiðkunar), umferðaröryggi og vöruverð lægsta einkunn í Dölum. Þessi tvö svæði gefa einnig almenningssamgöngum lága einkunn í samanburði við önnur svæði, sem og farsímasambandi, þjónustu við fatlaða og vegakerfinu. Dalamenn reyndust einnig óánæðastir þeirra sem könnunin náði til með vöruverð, umferðaröryggi, mannlíf og laun.

Þó íbúar í Vestmannaeyjum, á Akureyri og við Eyjafjörð mælist með hæsta heildarstigagjöf í könnuninni þá er mismunandi hvaða þætti þeir eru ánægðir með. Í samanburði við önnur svæði gefa Vestmannaeyingar mannlífi, skipulagsmálum, umferð, umferðaröryggi, íbúðaframboði, framfærslu og viðhorfi til sveitarfélags góða umsögn. Akureyringar eru jákvæðastir gagnvart háskóla, framhaldsskóla, almenningssamgöngum, íbúðaframboði, vegakerfi, menningu, umhverfismálum og sorpmálum.

Grindvíkingar ánægðir með sitt sveitarfélag
Afstaða til ýmissa málaflokka er afar breytileg milli landsvæða. Þannig eru Grindvíkingar jákvæðastir gagnvart sínu sveitarfélagi en meðal þeirra óánægðustu af búsetusvæðunum hvað varðar heilsugæslu og almenningssamgöngur. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru meðal þeirra sem verst komu út í viðhorfi til útlendinga, voru óánægðastir allra í samanburðinum með umferðarmál en glaðastir með möguleika til eigin atvinnureksturs og fjölbreytni í atvinnu. Íbúar á norðanverðum Vestfjörðum voru hins vegar ánægðastir allra með tónlistarskóla og deila með íbúum Skaftafellssýslna mestri ánægju allra með náttúruna.

Áberandi er lítil ánægja með framboð leiguíbúða heilt yfir á landinu en jákvæðastir með þennan málaflokk eru þó Akureyringar, íbúar í Reykjanesbæ og í Vestmannaeyjum. Óánægja með framboð leiguíbúða er mest á Vestfjörðum, Ströndum og Reykhólum, sem og í Skaftafellssýslum.

Vöruverð, vöruúrval, vegakerfi og laun
Mikill munur reyndist á svörum milli landsvæða hvað varðar vöruúrval, vöruverð og vegakerfið. Vöruverð fær almennt frekar lága einkunn en íbúar á Akranesi, við Hvalfjörð, á Akureyri, Borgarfjarðarsvæði og í Vestmannaeyjum eru jákvæðastir hvað það varðar. Óánægðastir með vöruverð eru íbúar í Dölum, á Ströndum og Reykhólum, á sunnanverðum Vestfjörðum og í Austur-Húnvatnssýslu.

Höfuðborgarbúar eru ánægðastir landsmanna með vöruúrval og fast á hæla þeim koma íbúar í VesturHúnavatnssýslu og á Akureyri. Lægstu einkunn fyrir vöruúrval gáfu íbúar Sveitarfélagsins Voga og Dalamenn. Akureyringar, íbúar í Vogum og á höfuðborgarsvæðinu gáfu vegakerfinu hæstu einkunnirnar en íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum, í Dölum og Vestur-Húnvetningar gáfu því lægstu einkunnir þeirra sem svöruðu.

Munur á afstöðu gagnvart launum var í meðallagi milli landsvæða. Þar komu íbúar í Fjarðabyggð, á sunnanverðum Austfjörðum, í Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðinu best út en íbúar í Dölum, í AusturHúnavatnssýslu og á Borgarfjarðarsvæðinu reyndust óánægðastir með launaþáttinn. Borgfirðingar reyndust einnig áberandi neikvæðastir allra gagnvart skipulagsmálum.

Áhrif faraldursins merkjanleg
Þegar niðurstöðurnar eru bornar saman við fyrri íbúakönnun árið 2017 sést að heildareinkunn lækkaði mest í Reykjanesbæ á þessu tímabili. Hins vegar hækkuðu einkunnir í Suðurnesjabæ og í Grindavík frá fyrri könnun. Áhrifa kórónuveirufaraldursins gætir bæði á neikvæðan og jákvæðan hátt þegar niðurstöður kannananna eru bornar saman. Auk Reykjenesbæjar er þetta vel sýnilegt í Skaftafellssýslum þar sem mikill samdráttur hefur orðið í ferðaþjónustu með tilheyrandi afleiðingum í atvinnulífi.

Aukin áhersla sem víða kemur fram á þjónustu við fólk í fjárhagsvanda bendir einnig til tengsla við faraldurinn. Víða er mælanleg aukin jákvæðni með húsnæðismarkað á svæðum sem og með minni umferðarþunga á vegum, sem hvort tveggja má m.a. tengja minni umsvifum í ferðaþjónustu. Óánægja er mælanleg hvað varðar vöru- og þjónustumarkaðinn sem kann að skýrast af veikingu krónunnar, lokunum og takmörkunum vegna faraldursins.

Hamingjusamir nátttúruunnendur!
Stærsti hópur þátttakenda mat hamingju sína 8 á skalanum 1-10. Lítill munur mældist á hamingju íbúa eftir landsvæðum en íbúar í Vestmannaeyjum og Snæfellsbæ reyndust þó hamingjusamastir og marktækt hamingjusamari en á öðrum svæðum landsins. Íbúar höfuðborgarsvæðisins og Reykjanesbæjar voru hins vegar marktækt óhamingjusamari en aðrir í könnuninni.

Þættir á borð við friðsæld, náttúru og loftgæði fengu almennt nokkuð háar einkunnir þátttakenda. Dalamenn eru t.d. ánægðastir með loftgæði en íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri óánægðastir með þau. Hæstu einkunnirnar fyrir náttúruna gáfu íbúar á norðanverðum Vestfjörðum en almennt eru landsmenn þó ánægðir með íslensku náttúruna og lítill munur á viðhorfi þeirra til hennar, segir í tilkynningu frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir hönd landshlutasamtaka sveitarfélaga.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst