Vestmannaeyjabær hefur fest kaup á eignum í Vestmannaeyjum sem seldar voru Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf árið 2004. Um er að ræða Félagsheimilið, Þórsheimilið, Týsheimilið, Barnaskólann, Hamarsskólann, Sóla, Kirkjugerði, Rauðagerði og Safnahús. Kaupverðið er 1.850 milljónir en Elliði Vignisson, bæjarstjóri greinir frá þessu á facebooksíðu sinni.