Vestmannaeyjar í gegnum linsu tímans

Fjórði þáttur sýninganna “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður laugardaginn 28. febrúar kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Á undan eins og á fyrri sýningum verður sýnt stutt myndbrot og myndir. Nú fjöllum við um togspilið í Klaufinni  sem er löngu orðið eitt af kennileitum á Heimaey og strand breska togarans Star of the East í Höfðavík 3. mars 1946  fyrir réttum 80 árum.

Eins og í fyrri þáttum er myndefnið fjölbreytt og spannar bæjarlífið, setningu Þjóðhátíðar um1970, knattspyrnuleik við Hástein, sauðfjárbændur á heimalandinu,  vertíðarlífiðnorðan Strandvegar, knattspyrnuleik á gjallvellinum við Löngulág meðan á gosinu stóð og margt fleira áhugavert.

Líkt og á fyrri sýningum mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, yfirfór myndefnið og sá um úrvinnslu verkefnisins, sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Mjög góð aðsókn hefur verið á fyrstu þremur sýningum. Þrjú stór sjónvörp á staðnum gerir upplifunina enn betri.

Nýjustu fréttir

„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Boranir hefjast í apríl
Fjölbreytt efni í nýju tölublaði Eyjafrétta
Opið hús og kertalýsing – myndir
Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.