Eins og flestir vita er Sumardagurinn fyrsti næstkomandi fimmtudag, 21.apríl og við tökum að sjálfsögðu sumrinu fagnandi hér í Eyjum eins og aðrir landsmenn. Að því tilefni ætlar Leó Snær að spila á Tanganum síðasta vetrardag, 20. apríl, og bjóða sumarið velkomið eins og Eyjapeyjum og pæjum er einum lagið. Leó spilar á milli 22-01 og mun að sjálfsögðu taka þekkta slagara sem allir fíla og skapa frábæra sumarstemningu. Síðast þegar Leó Snær spilaði á Tanganum var troðið út að dyrum og því gott að mæta snemma.