Víkingur mun sigla þrjár ferðir í Landeyjahöfn í dag. Skipið sigldi í morgun klukkan 8:30 frá Eyjum og klukkan 10:00 frá Landeyjahöfn. Næsta ferð verður frá Eyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn 16:00. Síðasta ferð dagsins er svo 17:30 frá Eyjum og 19:00 frá Landeyjahöfn. Farþegar eru minntir á að einungis eru strætóferðir í tengslum við fyrstu og þriðju ferð skipsins.