ÁTVR opnar nýja Vínbúð í Vestmannaeyjum á morgun, miðvikudag klukkan tólf. Flyst verslunin af Strandvegi 50, Hvíta húsinu þar sem Vínbúðin hefur verið í áratugi á Vesturveg 10. Allar innréttingar og kassar eru nýir og verður öll aðstaða betri, bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Vínbúðin í Eyjum var fyrst til húsa að Heimagötu 1. En það voru ekki allir sáttir við vínbúðina og henni var lokað eftir íbúakosningu, sennilega árið 1956. �?á var áfengið keypt með símskeyti til Áfengis- og tóbaksverslunarinnar í Reykjavík, sem síðan sendi flöskurnar með Póstinum til Eyja. �?að var því oft örtröð á pósthúsinu um helgar og stórhátíðir. Og ýmsir urðu til að kaupa meira en til eigin neyslu og önnuðu því eftirspurn til þurfandi, þegar búið var að loka pósthúsinu. Aftur var svo opnuð vínbúð í Eyjum árið 1968 eftir að íbúakosning um hana hafði farið fram og þá fór hún í Hvíta húsinu við Strandveg 50 og þar hefur hún verið til þessa dags.
Vesturvegur 10 er því þriðja húsið sem hýsir vínbúð í Eyjum, ef pósthúsið er ekki meðtalið.