Strandamenn hafa tekið Guðna Ágústssyni, formanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi landbúnaðarráðherra, með kostum og kynjum en ráðherrann er á ferð í Árneshreppi þessa dagana. Guðni kom við hjá Guðmundi bónda Þorsteinssyni á Finnbogastöðum á sunnudagskvöld og vottaði honum samúð sína vegna brunans mikla á Finnbogastöðum þann 16. júní.
Þá hét Guðni Guðmundi stuðningi við endurreisn Finnbogastaða.