Tímabundin vinnustöðvun skipverja á Herjólfi hófst á miðnætti og stendur í einn sólarhring. Þetta var staðfest þegar Félagsdómur hafnaði kröfu Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Herjólfs ohf. um að dæma boðaða vinnustöðvun ólögmæta.
„Vinnustöðvunin var boðuð fyrir rúmri viku síðan en Herjólfur ohf., sem er í eigu Vestmannaeyjabæjar, ákvað að fara með málið fyrir Félagsdóm og freista þess að fá boðuninni hnekkt. Það kom úrskurður klukkan sjö eða átta í kvöld um það að vilji Herjólfs ohf. næði ekki fram að ganga,“ segir Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands, í samtali við mbl.is.
Jónas segist ánægður með niðurstöðu Félagsdóms og vonast til að nú fari samningaviðræður að komast á skrið. „Vonandi fæst þetta fólk sem vinnur hjá fyrirtæki bæjarins til að tala við okkur. Það hefur ekki fengist til þess í núna á annað ár. Ég veit ekki hvort það er með vilja bæjarbúa og bæjarstjóra,“ bætir hann við.
Um 20 starfsmenn er að ræða, háseta, bátsmenn og þjónustufólk og mun Herjólfur ekki sigla á meðan vinnustöðvunin stendur yfir. Önnur vinnustöðvun er boðuð eftir viku, frá miðnætti 14. júlí og mun hún standa yfir í tvo sólarhringa. Þriðja vinnustöðvunin verður svo frá miðnætti 28. Júlí og mun hún standa yfir í þrjá sólarhringa.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.