Tillagan Hafið kallar eftir Daníel Imsland hafnaði í fyrsta sæti í samkeppni um skreytingar á suðurgafli nýrrar frystigeymslu VSV við Kleifar í Heimakletti. Tveir keppendur/höfundar deila með sér þriðja sæti. Alls bárust ellefu tillögur frá sjö höfundum.
Vinnslustöðin stóð að samkeppninni í samvinnu við Vestmannaeyjabæ. Auglýst var eftir �??fjölbreyttri, spennandi og frumlegri hugmynd en jafnframt raunhæfri�?? í keppnislýsingu og vísað til þess að húsgaflinn væri á áberandi stað, vel sýnilegur frá suðurhöfn og ferjubryggju.
Höfundur tillögunnar í fyrsta sæti fær hálfa milljón króna í sigurlaun, fyrir annað sæti eru 250 þúsund krónur í verðlaun og 125 þúsund fyrir þriðja sætið.
�?orsteinn �?li Sigurðsson dómnefndarformaður sendi þátttakendum bréf í dag þar sem úrslit eru rakin og rökstuðningur dómnefndar. �?ar segir meðal annars:
�??Reglur samkeppninnar kváðu um að tillögurnar skyldu metnar út frá útliti og umhverfi (50%), tengingu við atvinnuvegi og samfélag (25%), hagkvæmni (15%) og frumleika (10%).
Dómnefnd gaf stig fyrir hvern þátt og úrslit urðu sem hér segir (tillögur í þriðja sæti urðu jafnar að stigum og skipta með sér verðlaunafénu):
1. Hafið kallar eftir Daníel Imsland.
Rökstuðningur dómnefndar: Tillagan byggist á sterkri mynd af sjómanni og ólgandi hafi. Myndefnið á vel við staðinn og gæti komið vel út. Höfundur sækir liti í nánasta umhverfi, sterk skírskotun er í atvinnuhætti og líf Eyjamanna. Kanna þarf betur tæknilega framkvæmd og útfærslu verksins.
2. Spegilgafl eftir Bjarka Zophoníasson.
Rökstuðningur dómnefndar: Tillagan gerir ráð fyrir að þekja gafl byggingarinnar spegli og endurspegla þannig umhverfið. Staðarandinn er endurspeglaður og ávallt í takt við líðandi stund. Tillagan er tæknilega erfið í framkvæmd og gæti skapað vandamál fyrir sjófarendur vegna endurkasts sólarljóss.
3. Dægurlagatextar eftir Davíð Árnason og �?lduform 2 eftir Gunnar Júlíusson.
Rökstuðningur dómnefndar:
Dægurlagatextar. Tillagan byggist á því að þekja gafl byggingarinnar með hluta úr dægurlagatextum og er nokkuð frumleg. Tillagan er einföld í framkvæmd, gæti sómað sér vel á gaflinum en hætta er á að smæsti textinn sjáist illa úr fjarlægð.
�?lduform 2: Einföld og stílhrein mynd af ölduformi eins og heitið bendir til. Gæti sómt sér vel á gaflinum. Einföld í framkvæmd.
Heildarmat dómnefndar
Lítill munur var á verðlaunatillögunum í stigum talið og mjög mjótt á munum, sér í lagi á það við um fyrsta og anna sæti.
Fáar tillögur bárust, einungis ellefu talsins, sem kom dómnefndinni nokkuð á óvart.
Tillögunum hefur verið skilað til Vinnslustöðvarinnar til frekari umfjöllunar og rétt er að rifja upp eftirfarandi úr reglum um samkeppnina:
�??Vinnslustöðin áskilur sér rétt til að nýta að hluta eða öllu leyti vinningstillögurnar eða breyta án samráðs við höfunda. Velja önnur efni eða aðferðir við ásetningu en val listamanns.�??�??
Dómnefnd samkeppninnar
�?orsteinn �?li Sigurðsson tæknifræðingur, formaður, skipaður af VSV;
Pétur Jónsson landslagsarkitekt frá Landark;
Margrét Rós Ingólfsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar;
Hafþór Halldórsson, verkefnastjóri hjá Vestmannaeyjabæ.
Trúnaðarmaður dómnefndar var Haraldur Bergvinsson, starfsmaður VSV.
Af VSV.is