Valdimar Gíslason má teljast ótrúlega heppinn að sleppa án teljandi meiðsla eftir að tjaldhæll stakkst í ennið á honum. Einungis munaði millímetra að tjaldhællinn fór í gegnum höfuðkúpuna og segist hann heppinn að hafa ekki orðið blindur eða hlotið heilaskaða. Óhappið varð á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, síðdegis á sunnudeginum. Valdimar segir við Pressuna að hann hafi verið staddur á tjaldstæðinu í Herjólfsdal ásamt nokkrum vinum sínum. Þeir fá þá „snilldarhugmynd“ að sækja sér rollu upp í fjall til að taka með á tjaldstæðið.