200 millj­ón­um und­ir áætl­un

Björg­un ehf. átti lang­lægsta til­boð í dýpk­un í og við Land­eyja­höfn næstu þrjú árin. Til­boð fyr­ir­tæk­is­ins reynd­ist 200 millj­ón­um króna und­ir áætl­un Vega­gerðar­inn­ar um verk­taka­kostnað.

Í útboði Vega­gerðar­inn­ar er miðað við dýpk­un um 300 þúsund rúm­metra á ári, alls um 900 þúsund rúm­metra. Er það tals­vert minna en und­an­far­in ár.

Til­boð lægst­bjóðanda, Björg­un­ar ehf., hljóðaði upp á tæp­ar 618 millj­ón­ir kr. sem er liðlega 75% af áætluðum verk­taka­kostnaði sem var 817 millj­ón­ir. Tvö önn­ur til­boð bár­ust, Jan De Nul n.v. bauðst til að taka verkið að sér fyr­ir 1.179 millj­ón­ir. Það er belg­íska fyr­ir­tækið sem ann­ast hef­ur dýpk­un­ina und­an­far­in þrjú ár og notað dýpk­un­ar­skipið Gali­lei 2000 við verkið. Þá bauð Tohde Niel­sen A/​S í Kaup­manna­höfn tæp­ar 1.400 millj­ón­ir. Hæsta til­boð er því meira en tvö­falt hærra en það lægsta, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

mbl.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.