Af hverju ekki lundasalat?

Hljómsveitin XXX Rottweiler koma fram á Brekkusviðinu á Þjóðhátíð í eyjum á föstudagskvöldið næstkomandi. Hljómsveitin er þekkt fyrir sterkar skoðanir og mönnum og málefni og koma þær skoðanir fyrir í textum þeirra. Eyjar.net hafði samband við Þorstein Lár eða MegaLár eins og hann er kallaður.

MegaLár er að koma á sínu þriðju Þjóðhátíð sem tónlistarmaður en aldrei hefur hann komið sem gestur á hátíðina. MegaLár segir stemningin sé svipuð og að fara til útlanda og er hann hræddur um að Þjóðhátíðin deyji ef að það koma göng.
Þegar eyjar.net báðu MegaLár að segja hvað kæmi fyrst upp í hugann þegar eftirfarandi orð voru sögð voru svörin eftirfarandi:

Flugeldasýningin: Vulcan risa tertur , Signal, Tívolíbombur, Royal, Þýsku Weco risaraketturnar bara basic !

Hvítu tjöldin: Lundasallat, það er ný afurð sem ég hef velt fyrir mér í eitt ár eða síðan þjóðhátíð 2006. skil ekki af hverju menn tappa þessu ekki á dósir í salat formi!

Árni Johnsen : flottur strákur!

MegLár segir að veðrið sé það sem geri þjóðhátíðina að góðri útihátíð og einnig er lykilatriði að leyfa XXX Rotweiler að klára prógrammið sitt.

 

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.