Engin jarðgöng til Vestmannaeyja en ferðum Herjólfs fjölgað

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, kynnti í ríkisstjórn í dag skýrslu Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. um mat á kostnaði á gerð jarðganga milli Vestmannaeyja og lands. Tillaga samgönguráðherra sem var samþykkt gerir ráð fyrir að í ljósi hins mikla kostnaðar og óvissu vegna jarðfræðilegra aðstæðna við gerð jarðganga verði öll áform um gerð slíkra ganga lögð á hilluna. Jafnframt var samþykkt að semja um 15 árlegar viðbótarferðir með Herjólfi árin 2008 til 2010.Á blaðamannafundi í dag greindi Kristján frá því að niðurstaða skýrslunnar er að kostnaður við jarðgöng er talinn geta orðið á bilinu 52 til 80 milljarðar króna.

Göng sem yrðu steypufóðruð þrjá km næst Heimaey eru talin kosta 52 milljarða en væru þau steypufóðruð alla 18 km er kostnaður talinn verða 80 milljarðar. Þá kemur fram í skýrslunni að álitamál sé hvort nokkurn tímann geti verið réttlætanlegt að grafa eða reka ,,þetta löng jarðgöng djúpt undir sjó á jafn jarðfræðilega virku svæði og Vestmannaeyjasvæðið vissulega er og dæmin sanna,” eins og segir í samantekt skýrsluhöfunda.

„Tillaga samgönguráðherra gerir einnig ráð fyrir að skrifað verði undir samkomulag um 15 árlegar viðbótarferðir með Herjólfi árin 2008 til 2010 en ferðum Herjólfs hefur verið fjölgað verulega á þessu ári. Samkomulag um viðbótarferðir náðist í samræðum samgönguráðherra og fjármálaráðherra við forstjóra Eimskips í morgun. Með nýjum samningi árið 2005 var kveðið á um 720 reglulegar ferðir á ári auk nokkurra aukaferða. Hefur fjöldi ferða því tvöfaldast í áföngum á síðustu árum,” samkvæmt tilkynningu.

Bakkafjöruhöfn tekin í notkun árið 2010

Þingsályktun um samgönguáætlun áranna 2007 til 2010 gerir ráð fyrir því að framtíðarsamgöngur milli lands og Eyja verði með nýjum Herjólfi sem sigli milli Bakkafjöru og Heimaeyjar. Undirbúningur að gerð hafnar í Bakkafjöru felst meðal annars í breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra og verið er að ganga frá útboðslýsingu fyrir nýja ferju. Hönnun hafnarinnar er hafin svo og sáning á Landeyjasandi. Gert er ráð fyrir að taka megi Bakkafjöruhöfn í notkun seint á árinu 2010, samkvæmt tilkynningu.

Vegagerðin fól í apríl Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. að leggja mat á kostnað við gerð jarðganga milli lands og Eyja og fékk VST ýmsar skýrslur og gögn sem unnin hafa verið um málið á síðustu misserum og árum, bæði fyrir samgönguyfirvöld og Ægisdyr, áhugafélag um gerð jarðganga milli lands og Eyja. Verkefni VST fólst í því að leggja mat á kostnað við jarðgangagerðina á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Ekki skyldi stofna til nýrra rannsókna eða athugana. Samstarfsaðili VST var svissneska verkfræðistofan Pöyri Intra (áður Electrowatt), sem komið hefur að virkjanaframkvæmdum á Íslandi undanfarna áratugi.

Skýrslan var afhent fulltrúum samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar síðastliðinn þriðjudag og eftir að hafa farið yfir efni skýrslunnar lagði samgönguráðherra tillögur sínar fyrir ríkisstjórnarfund í dag, að því er segir í tilkynningu.

 

Nýjustu fréttir

Marsralli um það bil að ljúka
Gul viðvörun fyrir allt landið
Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Íþróttamaður mánaðarins – Birna María
Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?
Framtíðarsýn – tökum samtalið
Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Hátt í 50 metrar á Stórhöfða

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.