Árni Johnsen ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort segir Þjóðhátíðarnefnd

Þjóðhátíðarnefnd í Vestmannaeyjum treysti sér ekki til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á hátíðinni. Nefndin segir það vera vegna þess að hann hafi ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort í þeim störfum.

Árni Johnsen segir í viðtali í Þjóðhátíðarblaðinu, sem kom út í dag, að hann sé ósáttur við hvernig staðið var að skiptum á kynni Þjóðhátíðar í fyrra. Hann hafði þá gegnt starfinu í þrjátíu ár.Árni segir það broslegt þegar sér hafi verið tilkynnt það á skyndifundi í Herjólfsdal af Páli Scheving í Þjóðhátíðarnefnd, að tveir af þremur nefndarmönnum vildu að hann hætti sem kynnir hátíðarinnar.

Árni segist hafa spurt Pál að því hvort það væri pólitík í þessu. Páll hafi byrst sig ógurlega og sagt að ef Árni talaði svona til hans fengi hann ekkert að vera á Þjóðhátíð. Árni segist hafa fengið þarna svar við spurningu sinni.

Í yfirlýsingu sem Þjóðhátíðarnefnd sendi Stöð 2 í dag eru ummæli Árna kölluð leirburður, og sögð vera bæði ósönn og ærumeiðandi. Páll hafi ekki svarað með þeim hætti sem Árni lýsir, hann hafi þess í stað sagt spurninguna ósanngjarna, þar sem Þjóðhátíðarnefnd blandi ekki pólitík við sín störf.

Í yfirlýsingunni ítrekar Þjóðhátíðarnefnd ástæðu þess að Árna var gert að hætta sem kynnir. Það hafi verið í kjölfar þess að Árni hafi slegið söngvarann Hreim Heimisson á Brekkusviðinu árið 2005. Nefndin segir að öll vitni að atburðinum hafi verið sammála um að Árni hafi slegið Hreim. Í framhaldi segir í yfirlýsingu Þjóðhátíðarnefndar:

„Þessi atburðarás varð til þess að Þjóðhátíðarnefnd tók þá ákvörðun einróma að skipta um kynni. Það skal tekið fram að þetta er ekki í fyrsta og eina skiptið sem Árni missir stjórn á sér á Brekkusviðinu og sýnir af sér dómgreindarskort.”

Þjóðhátíðarnefnd segir að ummæli Árna í Þjóðhátíðarblaðinu séu aumkunarvert yfirklór, sem nefndin kjósi að skoða sem tæknileg mistök. Í niðurlagi yfirlýsingarinnar segir:

„Nefndin treysti sér einfaldlega ekki lengur til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á Brekkusviðinu. Það er lykilatriði í málinu. Lái okkur hver sem er.”

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.