Bragðdaufur leikur Eyjamanna

Bragðdaufur leikur eyjamanna sem spiluðu í dag við HK sem sigraði með 34 mörkum gegn 28 mörkum eyjamanna.

Leikurinn var allur í lama sessi enda sást það að það vantaði 3 lykil menn í liðið og var það hlutverk ÍBV að vera undir í leiknum allan tíman en mest var það 10 marka munur en minnst 4 mörk.

Ekki er hægt að segja að þetta hafi verið góður leikur enda misstu eyjamenn oftar boltann en þeir náðu að setja mörkin ásamt því að klúðra sendingum á milli manna ef þetta á að vera spilið sem stuðningsmenn eiga að vænta í vetur þá er hægt að bóka það að ÍBV muni spila í 1 deild í handboltanum líka að ári. 

Dómarar leiksins fá heldur ekki góða einkunn úr þessum leik því að þeir voru að klúðra hlutum aftur og aftur fyrir báðum liðum en kannski það skemmtilegasta sem gerðist í leiknum var þegar leikurinn var stöðvaður þegar rúmlega 15 mín voru eftir að seini hálfleik en þá uppgötvaðist að húsið væri að leka og dómarar voru með mikla reikistefnu um málið og skildu svo eftir sig tusku á gólfinu.
Næstu helgi verða eyjamenn að spila við Valsmenn á hlíðarenda og verður liðið að hysja upp um sig buxurnar og vinna þann leik.

Útsending sem átti að vera í dag frá leiknum tókst ekki vegna bilunar í netinu í íþróttarhúsinu en vonandi verður það komið í lag í næsta heimaleik.

www.ibvfan.is

 

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.