Banna alkóhólistum að reykja innandyra

Meðlimir AA-samtakanna mega eftirleiðis ekki reykja innandyra á fundarstað sínum í Vestmannaeyjum.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hafði veitt leyfi fyrir reykingum í herbergi inn af eldhúsi í húsi sem Vestmannaeyjabær á en AA-menn hafa til umráða.
„Þetta verður ekki vinsælt hjá okkar fólki. Af einhverjum ástæðum er það svo að flestir hérna reykja og það er dálítið heilagt fyrir þeim að fá að gera það óáreittir. En auðvitað hafa þeir sem ekki reykja líka sinn rétt svo reykingafólkið verður víst einfaldlega að vera úti,” segir oddviti AA-samtakanna í Vestmannaeyjum.

Einn félagsmanna í AA í Eyjum óskaði eftir því í desember 2006 að reykingar yrðu bannaðar í AA-húsinu. Heilbrigðiseftirlitið brást við með því að mælast til þess við AA-samtökin að banna reykingarnar. Skömmu síðar barst Heilbrigðiseftirlitinu bréf frá samtökunum þar sem fram kom að nú væri kvartað undan því að ekki mætti reykja í húsinu. Sú kvörtun var byggð á því að margir ættu erfitt með að hætta samhliða að drekka og reykja. Af þessari ástæðu heimilaði Heilbrigðiseftirlitið reykingarnar.
Þessa niðurstöðu sætti félagsmaðurinn sig ekki við og kærði Heilbrigðiseftirlitið til úrskurðarnefndar um hollustuhætti og mengunarvarnir. Fyrir úrskurðarnefndinni kom fram það sjónarmið Heilbrigðiseftirlitsins að reykherbergið inn af eldhúsinu væri ekki hluti af þjónusturými hússins og að „þar þyrfti enginn að fara inn nema til að reykja,” eins og segir í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar sem fellst ekki á rök Heilbrigðiseftirlitsins í málinu.

Segir úrskurðarnefndin að samkvæmt lögum um tóbaksvarnir séu reykingar ekki leyfðar í þjónusturými sem almenningur hefði aðgang að og það ætti við um húsnæði AA-samtakanna í Vestmannaeyjum:
„Úrskurðarnefnd telur að umrætt herbergi tilheyri þjónusturými húsnæðisins. Það er inn af eldhúsi og líklegt að tóbaksreykur eigi greiða leið um allt hús,” segir í niðurstöðu nefndarinnar.

 

Nýjustu fréttir

Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.