Stoltur samgönguráðherra

Það er margt athyglisvert sem kom fram í ræðum þingmanna um samgöngur í gær, miðvikudag á Alþingi. Reyndar vakti það athygli mína hversu fáir þingmenn tóku þar þátt. Hægt er að skoða ræðurnar hér.

Árni Johnsen hóf umræðuna. Talaði hann um verkfælni Vegagerðarinnar og metnaðarleysi stjórnvalda. Eins minntist hann á 12 kílómetra göng Færeyinga. Einhversstaðar hefur það líka komið fram að frændur okkar séu með önnur 25 kílómetra göng á teikniborðinu. Þessi tólf kílómetra göng kostuðu átta milljarða. hmmm…

Bjarni Harðarson, nýr þingmaður Framsóknar í kjördæminu sagðist vissulega hafa áhyggjur af samgöngumálum okkar Eyjamanna en kaus frekar að eyða tíma sínum í ræðustól að tala um sölu eigna á Keflavíkurflugvelli. En þessi tvö mál voru tekin saman til umræðu. Olli mér vonbrigðum, enda er þetta þingmaðurinn sem nýverið sigldi hingað yfir og fannst það bæði langt og dýrt. Bjarni tók það fram að allur morguninn hafi farið í að skoða þessi sölumál og vildi eyða tíma sínum í það. 

Svo var komið að öðrum nýjum þingmanni okkar Eyjamanna og annarra suðurkjördæminga. Grétar Mar Jónsson kom upp. Hann kaus líka að ræða um sölu eignanna á Keflavíkurflugvelli. Ekki svo mikið sem einn stafur um samgöngur við Vestmannaeyjar.  Athyglisvert…

Guðni Ágústsson, einn skemmtilegasti ræðumaður Alþingis var næstur, fyrrverandi landbúnaðarráðherra sem sat í ríkisstjórn tvö kjörtímabil talaði um að það væri sárt og sorglegt hvernig Vestmannaeyingar eru dregnir á asnaeyrunum.  Vildi hann nýtt skip strax.  Gott hjá honum en hann var í stöðu til þess að koma því í gegn, hann er það ekki lengur.

Samgönguráðherrann, Kristján Möller sagði það leitt að til þess skyldi koma að Herjólfur færi í slipp en skipið væri orðið gamalt og farið að bila.  Nefndi hann það að flutningsskipið Selfoss kæmi við í Eyjum á fimmtudag og það ætti nú að redda einhverju.  En ráðherrann endaði á að segja að hann væri stoltur af því sem núverandi ríkisstjórn væri að gera í samgöngumálum Vestmannaeyja. Þar er hann væntanlega að tala um Bakkafjörumálið. Það er gott mál en hvergi er minnst á að bæta úr brýnni þörf á samgöngum í dag.

Steingrímur Joð formaður VG sagði dapurlega komið að samgöngumálum til Eyja. Það þyrfti að bæta úr því, bæði í bráð og lengd. Síðan fór hann að tala um “ekki síður alvarlegt mál” sem var að opinber gögn liggja ekki fyrir Alþingi þegar mál voru til umræðu.  Árni Mathiesen annar tveggja ráðherra Suðurkjördæmis andmælti því en hafði ekki fyrir því að minnast á samgöngumálin okkar.  Kom mér ekki á óvart.

Athyglisverðustu ræðuna flutti hins vegar Atli Gíslason. Hann sagði Vestmannaeyinga hafa verið olnbogabarn, nánast í átthagafjötrum samgönguleysis. Hann sá ástæðu til þess að benda þingmönnum á að Vestmannaeyjar væru eyjasamfélag!!  Ætli það hafi verið þörf á því?

Eins sagði Atli að allar evrópskar og innlendar reglur mæla fyrir um að jaðarbyggðum líkt og Vestmannaeyjar fái sérstaka meðhöndlun. Hann bauðst sjálfur til að fara í ESA og nýta lögfræðikunnáttu sína. “Vestmannaeyjar eru í gíslingu ákvarðanatökuleysis sem jaðarbyggð”

Að endingu sagði Atli að siglingaleiðin milli lands og Eyja væri þjóðleið, alveg eins og samgöngur á vegum landsins og þær eiga að vera ókeypis. “Þetta er þeirra ferðamáti.”  Flott ræða hjá Atla, hann fær örugglega nokkur prik hjá Eyjamönnum fyrir þetta.

Lúðvík Bergvins tók síðastur til máls. Ég veit ekki hvað hann talaði um. Ekkert var minnst á hann í fréttum og ræða hans er sú eina sem ekki er tilbúinn inn á vef Alþingis þegar þetta er skrifað.

Það vakti líka athygli mína hverjir tóku ekki til máls.

Björgvin G. Sigurðsson

Kjartan Ólafsson

Árni Mathiesen (ekkert um samgöngumálin)

Björk Guðjónsdóttir

Grétar Mar Jónsson (ekkert um samgöngumálin)

Ætli þessu fólki finnist málið ekki brýnt?

Spyr sá sem ekki veit… 

Sigursveinn bloggar á http://svenko.blog.is

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.