2 úr ÍBV í 28 manna hóp landsliðsins

Í dag var valið í 28 manna hóp fyrir U-16 ára landslið Íslands eða öllu heldur strákar fæddir árið 1992. Voru 2 leikmenn frá ÍBV valdir í þennan hóp en það eru þeir Kristján Tómasson og Ólafur Sigurðsson. Hafa þessir peyjar verið að standa sig virkilega vel með 10.flokk félagsins ásamt því að vera að æfa og spila með Meistaraflokknum. Kristján hefur meira segja verið byrjunarmaður þar og Óli hefur einnig komið við sögu í leikjum liðsins.

Kristján og Óli eiga þetta svo sannarlega skilið enda skynsamir og mjög duglegir strákar og vonandi að þeir komist alla leið í lokahópinn sem fer á Norðurlandamótið næsta sumar! Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi og bara um að gera að halda áfram að æfa vel og gera sitt besta. Til hamingju með þetta peyjar.

Bjössi Einars þjálfari.

Áfram ÍBV ! 

Nýjustu fréttir

Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.