Eins og undanfarin ár heimsóttu okkur 8 ára grunnskólabörn úr Hamarsskólanum til að fræðast um eldvarnir í heimahúsum. Farið var yfir þær hættur sem geta skapast af kertaskreytingum og hvernig skuli bregðast við þeim hættum. Farið yfir þau öryggistæki á heimilum sem eru nauðsynleg eins og reykskynjarar, eldvarnateppi, slökkvitæki og einnig þarf fjölskyldan að ræða um flóttaleiðir á sínu heimili.Farið einnig yfir þann búnað sem allir þurfa að vera með um áramótin þegar verið er með blys og flugelda. Reykkafari hjá slökkviliðinu sýndi börnunum búnað sinn og einnig prófuðu þau hjálma slökkviliðsmanna. Smá gjafir fengu börnin frá Tryggingarmiðstöðinni, Lionsklúbbnum og slökkviliðinu. Og í lokin var börnunum skutlað aftur í skólann með slökkviliðsbíl.
Vestmannaeyjar 12.des 07. Ragnar þór Baldvinsson slökkviliðsstjóri.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.