Ég hef reyndar alltaf frekar vilja líta á mig sem fastan fyrir heldur en að vera eitthvað grófur leikmaður

Í dag birtum við leikmannakynningu úr körfuboltanum en sá sem gefur lesendum eyjar.net upplýsingar um sjálfan sig er Baldvin Johansen. Baldvin starfar sem fjárreiðustjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja en Baldvin er einn leikreyndasti leikmaður ÍBV í körfubolta.

Fullt nafn: 
Baldvin Johnsen

Fæðingarár -og staður: 
11. nóvember 1976, Reykjavík.

Fjölskylduhagir & foreldrar:
Giftur Aldísi Gunnarsdóttur eyjamær og saman eigum við tvö yndisleg börn, Draupni Dan 4 ára og Karítas Ósk 3 mánaða. Foreldrar mínir eru Guðfinnur Johnsen (sonur Árna Johnsen og Olgu Karlsdóttur) og Dýrfinna Baldvinsdóttir ættuð frá Melrakkasléttu og Kelduhverfi norður í landi.

Búseta:
Ég bý í fögrum fjallasal á suðurhafseyjunni Heimaey.

Atvinna:
Fjárreiðustjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja
 
Áhugamál:
Fjöskylda og vinir, lundaveiði og úteyjalíf, íþróttir og heilsurækt, útivist, vinnan, stjórnmál og svo auðvitað heimsfriður.

Staða á vellinum:
Aðalmaðurinn hverju sinni…(hehe)

Hæð:
203

Ferill:
Ég hóf ferilinn hjá Haukum í Hafnarfirði undir leiðsögn Ólafs Rafnssonar núverandi forseta ÍSÍ. Ólst upp í körfunni hjá Haukum og naut þess að hafa marga frábæra þjálfara á ferlinum eins og til að mynda Ingvar Jónsson sem hefur verið nefndur faðir körfuboltans í Hafnarfirði, John Rhodes þjálfaði mig á unglingsárunum og kenndi mér margt um lífið innan sem utan vallar. Einar Einarsson bróðir Bjössa, þjálfarans okkar hjá ÍBV, þjálfaði mig líka um skeið hjá Haukunum og lærði ég margt af honum. Auk þessa tók ég þátt í gríðarlega skemmtilegu ævintýri með drengja- og unglingalandsliðum Íslands þar sem Axel Nikulásson keflvíkingur/KR ingur þjálfaði og stýrði okkur til góðs árangurs. Undir lok ferilsins í úrvalsdeild spilaði ég nokkra leiki með Val og síðan reyndi ég aðeins fyrir mér hjá Ármanni-Þrótt í 1. deildinni áður en ég kom til Eyja.

Markmið í lífinu:
Að njóta lífsins með konunni minni og fylgjast með börnunum mínum blómstra.

Mottó:       
Dansaðu eins og enginn sé að horfa!!! 
                       
Minnistæðasti leikur:
Sigur á úrvalsdeildarliði Keflavíkur á þeirra heimavelli. Við spiluðum fyrir troðfullu húsi í Keflavík með tilheyrandi stemmningu og látum og stálum sigrinum á síðustu sekúndunni….það var með ljúfari sigrum á ferlinum …annar minnisstæður leikur var þegar við spiluðum við KR í KR-heimilinu. Þetta var fyrsta árið sem ég spilaði í úrvalsdeildinni undir stjórn Ingvars Jónssonar. Leikurinn var æsispennandi og mikið tekist á og undir lok leiksins dæmdi dómarinn fimmtu villuna á kanann okkar John Rhodes. Ég var settur inná og man að ég var að drepast úr stressi, þetta voru örugglega ekki nema 1-2 mínútur sem voru eftir af leiknum þegar ég kom inná og allt í járnum…á síðstu sekúndunni fékk ég boltann undir körfunni og þurfti bara að setja eitt sniðskot ofan í körfuna og einhvern vegin tókst mér að koma boltanum í hringinn….við unnum leikinn með einu stigi og mér var fagnað ógurlega fyrir vikið og kaninn okkar John Rhodes bauð mér út að borða á Pizza 67 eftir leikinn….þetta er nú sennilega minnisstæðasta karfan sem ég hef gert á ferlinum.

Erfiðasti andstæðingurinn:
Körfubolti er oft sagður vera leikur án snertinga en ég hef aldrei almennilega getað skilið þá fullyrðingu því mín reynsla er einmitt þveröfug…það er kannski af því ég spila stöðu miðherja sem er alltaf í harkinu inni í teignum…þar hef ég háð marga hildina við ýmsa góða menn og þrátt fyrir harkaleg átök á báða bóga þá hefur nú yfirleitt verið gengið af velli með vinskap eða að minnsta kosti án illinda. Albert Óskarsson miðherji/framherji hjá Keflavík var alltaf  erfiður viðureignar, Alexander Ermolinski sem spilaði lengi með Skallagrími var líka ansi seigur, auk þess að vera risastór þá var hann baneitraður utan við 3ja stiga línuna og mátti aldrei missa sjónar af honum. Fleiri kæmu vel til greina í þessu hlutverki, Ari Gunnarsson Skallagrími, Bjarni Magnússon ÍA/UMFG, Páll Kristinsson UMFN og svo framvegis.

Hver er grófastur í liðinu:
Ætli við Bjössi séum ekki grófastir…ég hef reyndar alltaf frekar vilja líta á mig sem fastan fyrir heldur en að vera eitthvað grófur leikmaður, það hljómar einhvern vegin betur.

Besti körfuknattleiksmaður fyrr og síðar:
Earwin Magic Johnson (LA Lakers), Larry Bird (Boston) og Michael Jordan (Chicago Bulls)….mestu snillingar allra tíma í körfunni…engin spurning.

Besti körfuknattleiksmaður sem Ísland hefur alið af sér:
Jón Arnór Stefánsson hefur klárlega náð lengst af  okkar körfuboltamönnum en Frikki Stefáns eyjapeyji er líka alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér enda hefur hann náð gríðarlegum góðum árangri í körfunni hér heima á Íslandi og er okkur eyjamönnum til sóma.

Uppáhaldslið:
ÍBV er auðvitað í uppáhaldi og svo slær Haukahjartað alltaf í takt.

Er framtíðin björt í körfuboltanum í vetur:
Framtíð körfuboltans í Eyjum er mjög björt um þessar mundir og við erum með marga mjög öfluga einstaklinga í yngri flokkum félagsins. Þeir sem mættu á leikinn við Keflavík um daginn sáu það mjög vel að yngri leikmenn liðsins eru að verða klárir í meistaraflokks bolta þrátt fyrir ungan aldur. Tveir leikmenn 10. flokks voru valdir í landsliðsúrval í sínum aldursflokk í vikunni, þeir Kristján Tómasson og Ólafur Sigurðsson. Þar fara tveir mjög efnilegir strákar í elsta flokknum. Þar fyrir utan eru yngstu leikmenn félagsins gríðarlega öflugir og spila í A-riðli í vetur sem þýðir að þeir eru meðal 5 bestu liða landsins í sínum aldursflokki í dag. Já framtíðin er björt fyrir körfuboltann í vetur og ég verð ílla svikinn ef við verðum ekki í baráttu um íslandsmeistaratitil í einhverjum af yngri flokkunum.

Hvernig líst þér á liðið í vetur:
Mér líst mjög vel á liðið okkar í vetur, margir öflugir leikmenn og nú síðast bættist í hópinn Sigurjón Örn sem kom frá Stjörnunni og styrkir hann liðið gríðarlega enda búinn að vera að spila í úrvalsdeildinni í vetur. Ef allir haldast heilir í vetur þá eigum við að geta gert góða hluti hér í vetur.

Í hvaða sæti mun ÍBV enda í vetur ?
Ég er stórhuga að eðlisfari og ætla ÍBV ekki minna hlutskipti heldur en að sigra sinn riðil í 2. deildinni og keppa til úrslita í 2 deildinni í vor. Ef guð og lukkan lofar tekst okkur að fara upp um eina deild og þá erum við farin að tala saman. Opinbert markmið okkar er að spila í úrvalsdeild eftir 3-5 ár þannig að við höfum þetta ár og næsta til að koma okkur upp úr 2. deildinni.

Áfram ÍBV

 

 

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.