Kvörtum bara yfir einhverju...

Það er varla hægt að lýsa því með orðum hvað maður hefur komist af mörgu hvernig fólk hagar sér í verslunum, bara með því að vinna í nokkra mánuði í Húsasmiðjunni. Það er ekki hægt að segja það nógu skýrt hvað margir eru rosalega þroskaheftir sem koma þarna niður eftir. Í fyrsta lagi er ekki mikil virðing borin fyrir fólki á mínum aldri og niður, það er hreinlega litið á okkur sem heilalausa einstaklinga sem nenni ekki að vinna.Í öðru lagi virðist þetta oft vera staður þar sem fólk fær útrás fyrir sitt ömurlega líf með því að rífa kjaft yfir því að allt sé að öllu. Í þriðja lagi heldur fólk líklega að það sé í lagi að ganga um verslunina eins og þetta sé ein risastór ruslatunna, það megi skilja hluti eins og kaffimál og tyggjóslettur út um allt og það helst á einhverju sem ekki væri hægt að ná því af.

Það er svolítið skemmtilegt hvað það er ómögulegt á allan hátt að gera sumu fólki til geðs, það er alltaf eitthvað að. Ef það er góð þjónusta er kvartað yfir því hvað lítið úrval er, ef það er í lagi er kvartað yfir því hversu erfitt er að finna hlutina, ef það er í lagi er kvartað yfir því hvað allt er dýrt, ef það er í lagi er kvartað yfir því hversu erfitt sé að fá bílastæði…það er alltaf eitthvað sem er að. Aðeins fáir einstaklingar eru þakklátir fyrir þjónustuna og liggur við að manni bregði þegar einhver þakkar fyrir það.

Þrátt fyrir þetta er ég ánægður þarna niður frá og hef ágætlega gaman að því að hjálpa fólki sem metur það. Þetta hefur hjálpað mér í að geta framkvæmt hluti sem fyrir mér voru ómögulegir, ekki að ég sé þúsund þjala smiður en þetta færir mig alla nær því á einhvern hátt. Mórallinn þarna niður frá er mjög góður og svona allir nokkuð hressir, verslunarstjórinn er virkilega þægilegur stjóri sem að margir mættu taka sér til fyrirmyndar…kann að meta duglega einstaklinga. 

Jæja…loksins nennti ég að skrifa eitthvað en pistillinn ber þess merki um að vera skrifaður án mikils fyrirvara. Spurning um að fólk biðji mig að skrifa um eitthvað í skilaboðunum og hvort það eigi að vera jákvætt eða neikvætt ! Bless í bili…

http://hvitavonin.xblogg.is/

 

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.