Glaðværð, gleði og jákvæð þátttaka
21. júlí, 2014
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hafði jákvæð áhrif á samfélagið og hafði ýmsar birtingamyndir. Ég sem kem víða við og hitti marga og varð þess áskynja hvað þessi jákvæðu áhrif skiluðu sér inn á vinnustaði, dvalarheimili og hjá fólki á förnum vegi.

Hvar sem ég kom í kaffistofur var búið að setja upp lista þar sem spáð var fyrir um úrslit mótsins og vegleg verðlaun sumstaðar í boði. Menn áttu sín uppáhalds lið og kappsfullar umræður, glettni og grín fylgdi umræðunni sem skilaði sér í jákvæðni á vinnustaðinn og í enda dagsins betri afköstum og skemmtilegri vinnustað. Í erli dagsins er gott að hafa eitthvað upp í erminni og hlakka til að hitta vinnufélagana sem máttu lúta í gras í kappleiknum kvöldið áður. Spennan jókst þegar liðunum fækkaði og „potturinn“ varð heitari. Fólk safnaðist jafnvel saman á torgum og opnum svæðum til að horfa á átrúnaðargoðin sín og stolt þjóða sinna spila knattspyrnu. Ekki var áhuginn eða jákvæðnin minni á dvalarheimilum þar sem eldri borgarar tóku ekki minni þátt í keppninni en væru þeir sjálfir búnir að reima á sig takkaskóna á heitum völlum Brasilíu. Þar mættu menn jafnvel í treyju liða sinna fyrir framan sjónvarpið til að kynda undir rífandi stemningunni sem konur og karlar tóku virkan þátt í. Á þennan hátt hafa íþróttir jákvæð áhrif á allt samfélagið. Hver þekkir það ekki á sjálfum sér sem búið hefur í samtaka samfélagi hvað andinn í bænum léttist þegar liðið sigrar leik svo ekki sé talað um þegar landað er meistaratitli.

Á mínum æskuslóðum mátti lesa í bæjarbraginn eftir gengi IBV í fótbolta eða handbolta. Fátt er meira rætt á hafnarvoginni og kaffistofum en gengi liðsins. Þegar vel gengur þá smitar það út í allt samfélagið og meiri gleði og jákvæðni ríkir. Ég held því fram að íslandsmeistaratitill IBV í handbolta hafi haft jákvæð áhrif á úrslit kosninganna í Eyjum í vor og hefði hjálpað hvaða bæjarstjórn sem var við völd. Slíkur er máttur íþróttanna. Þannig eru íþróttirnar ekki aðeins góðar fyrir þá sem þær stunda heldur hafa íþróttir jákvæð áhrif á allt samfélagið í kringum sig. Það er mikilvægt að við leggjum rækt við gleðina, vonina og það góða sem í okkur býr. Nógur er barlómurinn og neikvæðu fréttirnar sem góður tíðindin og jákvæðu fréttirnar verða að víkja fyrir í umræðunni.

Fátt gleður okkur meira en geta orðið að liði. Vera ærlegir þegnar, skila okkar og leggja öðrum lið. Þetta upplifið ég í liðinni viku ásamt 400 örðum góðum konum og körlum. Þessi hópur hefur hist á Þorláksmessu að sumri og borðað saman kæsta skötu til góðs fyrir þá sem þurfa aðstoð eða að tekið sé á með þeim undir hornið á vagninum og honum komið yfir erfiðan hjalla á lífsleiðinni. Til að gera þetta mögulegt hafa fyrirtæki og einstaklingar lagt sitt af mörkum ásamt þeim sem greiða sig inn að töluverður sjóður verður til sem notaður er til styrktar góðum málefnum. Í lok borðhaldsins eru styrkirnir afhentir af viðstöddum öllum þeim sem tóku þátt í verkefninu. Á þann hátt upplifa allir þátttöku sína í góðu verki og við göngum saman út í sumarnóttina glöð í bragði yfir betra samfélagi í dag en í gær. Það er sannarlega verkefnið að við leggjum okkur fram um betra samfélag. Reiðin og hatrið, skömmin og þunginn í umræðu síðustu ára bætir ekki samfélagið. Með því að efla forvarnir og íþróttir, taka þátt í hjálpsömu- og glaðværu samfélagi verður lífið okkur léttara og við sjálf ánægð og gleðjumst yfir framlagi okkar til betra lífs fyrir alla. Er það ekki verkefnið okkar allra?

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst