Í dag úrskurðaði aga og úrskurðarnefnd KSÍ að ÍBV skuli greiða 150.000 krónur í sekt vegna kynþáttaníðs stuðningsmanns félagsins í garð leikmanns KR. Verður undirritaður að segja eins og er að á dauða mínum átti ég fremur von fyrir þetta tímabil en að félagið okkar fái á sig sekt vegna slíks háttalags, enda hefur slíku fremur verið beint gegn leikmönnum okkar liðs í gegnum tíðina.
Stuðningsmenn ÍBV eru ekki skoðanalausir og láta vel í sér heyra ef þeir eru ekki sáttir við eitthvað inni á vellinum, hvort sem eru andstæðingar, dómari eða okkar eigin liðsmenn. Leifur Geir Hafsteinsson og Ívar Bjarklind sýndu þessu eðli Hólsarans mikla virðingu í texta ÍBV-lagsins þar sem þeir eru kallaðir spyrnufróðir spekingar með ráðleggingar, en á ferðinni væru jafnframt hvers manns hugljúfi. Jú það hefur ýmislegt verið látið flakka af Hólnum í gegnum tíðina, en ekki man ég eftir neinu eins og kynþáttaníði.
ÍBV-Íþróttafélag hefur brugðist við úrskurði nefndarinnar og sett stuðningsmann ÍBV í ótímabundið bann frá heimaleikjum liðsins og unir úrskurðinum. Vil ég taka hatt minn og kollu ofan fyrir forráðamönnum ÍBV fyrir fumlaus viðbrögð.
Því miður er þetta ekki í fyrsta sinn sem stuðningsmenn félagsins gera sig seka um svipaða hegðun og þetta, en árið 2010 varð Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni, fyrir barðinu á þeim, sem varð til þess að ÍBV sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis að háttalag sem þetta yrði ekki liðið á Hásteinsvelli og rætt verði við þá sem í hlut áttu.
Forráðamenn félagsins hafa um annað að hugsa þessa dagana meðan liðið okkar er í fallsæti en að fá á sig sektir vegna kynþáttaníðs af áhorfendapöllum. Verkefnið framundan er ærið og það þarf virkilega á dyggum og hressum stuðningsmönnum að halda til að tryggja áframhaldandi veru ÍBV í Pepsi-deildinni sumarið 2015.
Vil ég svo hrósa stuðningsmönnum ÍBV fyrir það skemmtilega uppátæki að hylla Jón Jónsson, leikmann FH, er hann gekk af Hásteinsvelli s.l. sunnudag. Hefði uppátækið mátt rata í fjölmiðla.
Sýnum öllum þátttakendum leiksins vir��ingu og verum félaginu til sóma.
Útrýmum kynþáttaníði af leikjum ÍBV.
Áfram ÍBV !
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst