Þjóðmenning og bænir
19. ágúst, 2014

Fólk á vinstri væng stjórnmálanna í höfuðborginni hóf fyrir nokkrum árum árásir á kristna trú og iðkun hennar í grunnskólum höfuðborgarinnar. Heimsóknir presta í skólana voru bannaðar og Gideonfélaginu var bannað að gefa skólabörnum Nýja testamentið eins og það hafði gert til margra ára. Þessi góður siður Gideonfélaga hefur treyst kristna trú í landinu og gefið börnum og unglingum tækifæri til að kynnast góðum kristnum gildum sem ekki er vanþörf á í samfélagi dagsins í dag.

Trúarlegum þætti jólahalds var úthýst úr skólum í höfuðborginni en jólin eru þó  haldin hátíðleg á nánast hverju heimili landsins.  Þetta gerðist þrátt fyrir að 86% landsmanna tilheyrðu söfnuðum sem hafa kristna trú að leiðarljósi og því ljóst að allur þorri landsmanna tilheyrir þeim sem vilja standa vörð um okkar „þjóðartrú.“ Kristin gildi eru hluti af daglegu lífi fólksins í landinu og stjórnarskráin er grundvölluð á þeim og slær vörð um kristna trú. Þessar ömurlegu árásir á kristna trú og iðkun hennar voru gerðar á vakt vinstri manna, sem við á hægri vængnum mótmæltum, en hvað er að gerast á okkar vakt?

Ríkisútvarpið undir stjórn nýs útvarpsstjóra sem ráðinn var á „okkar vakt“  ríður nú sama hestinum og þeir sem áður úthýstu kristnidómnum úr skólunum og styður nýjan dagskrárstjóra Rásar 1 í því að taka af dagskránni  morgunandakt, morgunbæn og Orð kvöldsins. Ekki er vitað til að þetta dagskrárefni hafi skaðað nokkurn sem hefur hlustað á það eða aðrar kristilegar andaktir sér til yndis frá árdögum útvarps á Íslandi. Er það virkilega svo að opinbert hlutafélag okkar allra, Ríkisútvarpið, ætli að hunsa 86% landsmanna, fjölmennan en þögulan hluta þjóðarinnar sem þykir vænt um bænirnar í útvarpinu og vill hafa þær áfram? Þær eru vissulega þáttur í þjóðmenningunni, hluti af lífi fjölmargra alla ævi og því langt í frá einkamál dagskrárstjórans á Rás 1 Ríkisútvarpsins. Ég er þess fullviss að þessi ákvörðun er gerð í óþökk mjög margra, þeirra hógværu og lítillátu þegna landsins sem bera harm sinn í hljóði vegna þessarar ákvörðunar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð staðið vörð um þjóðkirkjuna og í ályktun Landsfundar má m.a. lesa: „Sjálfstæðisflokkurinn telur að kristin gildi séu þjóðinni til góðs nú sem aldrei fyrr og að hlúa beri að kirkju og trúarlífi.“ Ég, sem er kristinnar trúar eins og þorri þjóðarinnar, tek undir þessa stefnu Sjálfstæðisflokksins af heilum hug. Nýr útvarpsstjóri hefur í mörgu farið vel af stað í starfi og ég óska honum góðs gengis. Þessi ákvörðun er hins vegar algjörlega úr takti við góða hefð, siði og hlutverk Ríkisútvarpsins frá upphafi. Þetta getur ekki gerst á okkar vakt.

Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst