Lykillinn að lífshamingjunni... og öllu hinu draslinu
10. mars, 2015

Ég elska bleikan, ég elska glingur og ég elska gjafir sem hafa persónulega þýðingu. Ég elska þegar ég horfi í spegil og finnst ég dáldið sæt. Mér finnst hún samt dásamlegust, tilfinningin þegar ég er sátt við sjálfa mig. Þegar það sem ég segi er í samræmi við það sem ég svo geri.  Ég elska þegar ég næ að tengjast fólki og fæ að sjá raunverulegu manneskjuna – á bak við grímuna. Það gerirst auðvitað bara þegar og ef ég er sjálf tilbúin að taka niður mínar eigin varnir, hleypa fólki að mér og mæta þeim í einlægni. 

Einlægni reynist mörgum erfið, því þá þarf maður að sýna fólki  allt það sem maður hefur lagt svo mikinn metnað í að halda í felum. Þú veist, þann hluta sem manni langar bara hreinlega til að skera burt og losa sig alfarið við. Ummm, já og kannski líma svo í staðinn einhvað svo dásamlegt, hrikalega skemmtilegt og eftirsóknarvert. Eitthvað sem aðrir myndu  öfunda mann fyrir. Og auðvitað dásama í bak og fyrir. Hmnm… íslenski draumurinn?

Áður en ég hellti mér í þriggja ára þráhyggjukennda upplýsingasöfnun varðandi allt það sem gerir sambönd góð, hélt ég að ég væri meingallað eintak fyrir að þurfa á ást, athygli og umhyggju að halda. Ég hélt í alvöru að það væri merki um styrk, kraft og íslenskt sjálfstæði að vera bara sjálfri mér nóg. Svo ég bað þá náttúrulega engan um aðstoð, hvatningu eða falleg orð, þó svo að ég hefði oft þurft mikið á því að halda. Og ekki datt mér til hugar að láta einhvern vita ef ég beyglaðist eitthvað á sálinni. Ekki langaði mig til að vera stimpluð sem veiklunduð, þurfandi eða dramadrottning. Og mér fannst líka að ef fólki þætti í alvöru vænt um mig, þá ætti það einfaldlega finna á sér að mér liði illa. Svo ég var sterk, ég var dugleg og ég tók þetta á hörkunni. En mikið hrikalega var ég oft einmana.

Ég tók svo ákvörðun fyrir þremur árum að öll mín samskipti skyldu verða opin, einlæg og heiðarleg. Að ég myndi biðja um aðstoð ef ég þyrfti, segja frá þegar sjálfstraustið mitt beyglaðist eða geðheilsan yrði tæp. Sem sagt, að viðurkenna það fyrir mínum nánustu að ég væri frekar ófullkomið eintak (en ykkur að segja þá held ég að svoleiðis opinberun komi fólki aldrei neitt brjálæðislega mikið á óvart). En sjitt hvað það er búið að vera erfitt ferðalag. Og verandi mjög lokuð manneskja, þá á ég enn töluvert langt í land.

Ég hélt til að byrja með að einlæg, opin og heiðarleg samskipti fælust fyrst og fremst í því að vera opin með það hvernig manni líður og að vera ekki alltaf að fela allt hausaruslið og tilfinningadraslið sitt. En það sem ég þurfti að læra alveg frá grunni var að framkoma annarra hefur nákvæmlega ekkert með mig að gera. Það hefur allt viðkomandi einstakling að gera. Sú magnaða uppgötvun gaf mér færi á því að vera ekkert sérstaklega að taka nærri mér þegar fólk ákveður að mæta mér í pirringi og leiðindum. Ég halda áfram að vera glöð, sæl og sátt við mitt þrátt fyrir skapsveiflur og fýlupúkastæla annarra. Þvílíkt frelsi! En ég skal samt alveg viðurkenna að oft þegar fólk kemur illa fram við mig get ég verið ótrúlega fljót að gleyma þessum göfuga lærdómi og orðið drullufúl í smá stund.

Lykilinn að lífshamingjunni og öllu hinu draslinu fann ég í því að hætta að gera öðrum til geðs, hætta að reyna að breyta öðrum og með því að sýna sjálfri mér alla þá ást, virðingu og væntumþykju sem ég krafðist af öðrum. Það er nefnilega dáldið þannig að framkoma annarra er í beinu hlutfalli við það sem manni finnst maður sjálfur eiga skilið.

Þegar ég sýni sjálfri mér ást og virðingu þá finnst mér ég eingöngu eiga góða, elskulega og virðingarfulla framkomu skilið og sætti mig við ekkert minna. Ég vel að vera í kringum fólk sem kallar fram góðu, skemmtilegu og blíðu hliðarnar mínar. Sem sættir sig við að ég get verið óttalegt kjánaprik. Ég vel fólk í kringum mig sem er gaman að hlægja með og sem ég á auðvelt með að eiga í einlægum, opnum og heiðarlegum samskiptum.

Ég passa þá upp á mína gleði og umfram allt, huga ég að mínum eigin tilfinningum og tek ekki ábyrgð á líðan annarra. Ég þarf líka oft að passa mig á því að kenna ekki öðrum um hvernig mér líður. Þegar ég sinni mínum eigin þörfum og passa upp á að gera hluti sem gefa mér gleði, þá fylli ég á hamingjubrunninn minn. Að halda gleði- og hamingjubrunninum mínum fullum er eina leiðin fyrir mig að geta gefið öðrum gleði, því með tóman tank hef ég nákvæmlega ekkert að gefa!

Ég sýni sjálfri mér ást og virðingu með því að sleppa tökum á samviskubiti og sektarkennd – hvort sem það kemur frá hausaruslinu mínu eða fýlupúkaárásum annarra. Ég fyrirgef sjálfri mér, því ég hef alltaf reynt að gera það sem ég gat, með það sem ég hafði og kunni, á þeim tíma. Ef ég hefði vitað betur, þá hefði ég klárlega gert betur. Alveg satt – ég lofa! Ég reyni eftir fremsta megni að sýna sama umburðarlyndi gagnvart mínu hausarugli og  tilfinningadrasli og ég er tilbúin að sýna öðrum. Og ég gef mér leyfi að detta niður í skapi, sjálfstrausti og gleði án þess að pirrast út í sjálfa mig fyrir.    

En umfram allt sýni ég sjálfri mér ást og virðingu, af-því-bara og þarf enga sérstaka ástæðu til. Bara af því að ég er svo dásamlega skemmtilega mannleg og á það bara svo innilega skilið. Já, bara svona alveg eins og þú!

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.