Alvöru dýpkunarskip á leiðinni

Nú berast þær fregnir að hagstæðasta tilboðið í sanddælingu í og við Landeyjahöfn hafi komið frá belgísku stórfyrirtæki að nafni Jan de Nul. Fyr­ir­tækið hef­ur boðið skipið Pinta sem er 90 metr­ar að lengd til verksins. Alvöru skip sem er u.þ.b 20 metrum lengra en núverandi Herjólfur og 25 metrum lengra en skipið sem búið er að hanna – og á að leysa núverandi Herjólf af.

Af þessu tilefni er vert að rifja upp orð Sigurðar Áss Grétarssonar, framkvæmdastjóra siglingasviðs Vegagerðarinnar.

,,Þeir erfiðleikar sem Herjólfur á við að glíma fyrir utan höfnina verða ekki leystir með breytingum á höfninni heldur aðeins með ferju sem ristir minna, heldur stefnu í ölduróti og er styttri en Herjólfur. Í stuttu máli ferju sem hentar aðstæðum fyrir utan Landeyjahöfn.

Þegar ákveðið var að byggja Landeyjahöfn þá fólst það í höfn og ferju. Ferju sem gæti siglt þangað yfir vetrartímann. Sú ferja þyrfti að vera minni en Herjólfur, það var ekki háð stærð hafnarinnar heldur aðstæðunum við Bakkafjöru. Jafnvel þótt höfnin væri stærri, garðar lengri, þá gæti ferjan ekki verið stærri því öldurótinu og dýpinu fyrir utan Landeyjahöfn verður ekki breytt. Sandburðurinn sér til þess. Því eru allar hugmyndir um stærra skip og stærri höfn andvana fæddar. Enda gerðu upphaflegar áætlanir ráð fyrir að nýja ferjan yrði aðeins 60 metra löng og grunnristuð. Þannig var ferjan kynnt.”

Þegar þessi orð sérfræðingsins eru skoðuð er óhætt að segja að menn bíði spenntir eftir að sjá 90 metra skipið koma og athafna sig í vetur í og við Landeyjahöfn. Ef það getur athafnað sig – þá á ekkert að vera því til fyrirstöðu að fá ferju sem ekki er bundin af því að vera of lítil fyrir þarfagreiningu Vegagerðarinnnar.

Nýjustu fréttir

Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.