Viðskiptabann á Rússa kemur verst niður á sjávarbyggðum
20. ágúst, 2015

Nú hefur það gerst sem vofði yfir þeim þjóðum sem skrifuðu upp á viðskiptabann Evrópusambandsins og Bandaríkjanna á Rússland að Rússar hafa sett viðskiptabann á innflutning matvæla frá þeim þjóðum sem undanþegnar voru frá banninu fyrsta árið. Ísland er eitt þeirra ríkja. 

Í þessu máli er ekki aðeins verið að setja í stórhættu afkomu þess hluta sjávarútvegsins sem mestum hagnaði hefur skilað undanfarin ár. Heldur er hér verið að setja afkomu margra sjávarplássa og íbúa þeirra í algjört uppnám og skaða hagsmuni þjóðarinnar til lengri tíma. Og hvaða þjóðum erum við svo að fylgja? Við erum að fylgja þjóðunum sem ætluð að láta okkur hanga í sama gálganum og Grikkir hanga nú, með Icesave snöruna um hálsinn.

Og til að þakka þessari leiðitömu þjóð leggur Evrópusambandið 18% refsitolla á makrílinnflutning frá Íslandi. Þetta er gert vegna þess að ekki hefur verið samið um hlutdeild Íslendinga í veiði úr sameiginlegum makrílstofninum, þar sem Íslendingar hafa verið beittir ofríki og ósanngirni. Svo því sé haldið til haga þá beita þessar þjóðir Íslendinga diplómatískum þvingunum vegna hvalveiða okkar þó  bæði Normenn og Bandaríkjamenn veiði fleiri hvali en við á hverju ári.

Þessar þjóðir eru ekki mjög uppteknar af okkar hagsmunum og láta nægja að sparka í sinn minnsta bróður sem samt gengur áfram hnípinn aftastur í röðinni og hefur enga aðkomu að ákvörðunum viðskiptabannsins. Evrópuþjóðirnar settu viðskiptabann á hergögn, bankaviðskipti við tiltekna banka og frystingu eigna rússneskra auðmanna en ekkert af þessu eru viðkomandi Íslandi. Á sama tíma flæðir bæði gas og olía til Evrópu sem aldrei fyrr frá Rússlandi og svo bílar og tískufatnaður svo fátt eitt sé talið frá Evrópulöndunum til Rússlands.

En Íslendingar leggja undir eina af þremur mikilvægustu stoðum atvinnulífsins í landinu, sjávarútveginn sem mun stórskaðast.  Engin Evrópuþjóð eða Bandaríkin myndu ganga svo nærri eigin hagsmunum í viðskiptabanni á Rússa eða nokkur önnur þjóð eins og Íslendingar gera sjálfum sér með þátttöku í viðskiptabanninu. Svo hvers vegna ættum við að gera það? Við, sem erum rétt að stíga upp úr mestu efnahagskreppu sem riðið hefur yfir þessa þjóð og erum að rétta úr kútnum en setjum sjálfviljug þann árangur í uppnám.

Tvískinnungur Íslendinga.

Sú afstaða einstaka Íslendinga eins og forseta ASI, að viðskiptabannið á Rússland sé ásættanlegt til skamms tíma vegna manréttindabrota Rússa á sér ekki stoð. Ég vil taka fram að ég mun aldrei skrifa upp á mannréttindabrot þeirra né nokkurra annarra þjóða. Viðskiptabannið mun engu breyta fyrir kúgaða þegna Rússlands eða annarra landa eins og hefur sýnt sig þegar litið er til reynslunnar. Ef við ætlum að beita aðrar þjóðir viðskiptaþvingunum vegan mannréttindabrota eins og við gerum við Rússa hvarnast fljótt úr hópi viðskiptalanda okkar. Hvernig haga Kínverjar sér, en nýlega var samþykktur á Alþingi viðskiptasamningur við þá voldugu þjóð sem hefur fótumtroðið mannréttindi íbúa í Tíbet og hinsegin fólk í Kína býr við lítil eða engin mannréttindi. Bandaríkjamenn voru okkar tryggasta bandalagsþjóð til langs tíma og þar eiga Íslendingar mikla viðskiptahagsmuni. Er sú mikla þjóð alltaf ríðandi á hvítum hesti yfir akur mannréttinda víða um heim? Nígería sem er mikilvægur markaður í Afríku er ekki þekkt fyrir höfðinglega framkomu hers og lögreglu við þegna sína og ég spyr er það öðruvísi mannréttindabrot en hjá Rússum?  Er engin tvískinnungur Íslendinga í þessu máli?

Hundruð starfa í húfi.

Það eru fleiri hliðar á þessu mái. Við setningu laga um veiðigjöld á síðast þingi fannst vinstri blokkinni á Alþingi veiðigjöld á sjávarútveginn allt of lág og sérstaklega á uppsjávarveiðiflotann. Þrátt fyrir að gengið var mun nær þeim hluta útgerðarinnar með álagningu gjaldsins en öðrum. Ef marka má sameiginlega niðurstöðu Utanríkismálanefndar þá er þverpólitíkur stuðningur við það að kippa mikilvægasta markaði uppsjávarvinnslunnar úr sambandi með tekjumissi upp á tæplega 40 milljarða króna á sama tíma og þungbær veiðigjöld eru á uppsjávarveiðum. Ég velti fyrir mér hvort sá einbeitti vilji sé enn til staðar að hækka beri veiðigjöld á uppsjávarflotann þegar þing kemur saman aftur. Það væri þá í takt við þann tvískinnung að á sama tíma ræddi Utanríkismálanefnd um það hvernig ríkissjóður gæti komið að og styrkt útgerð uppsjávarskipa í þeim mikla tekjumissi sem útgerðin verður fyrir vegna viðskiptannsins. Ákvörðun sem við Íslendingar tókum sjálfir og ógnar atvinnulífi í sjávarplássum eins og á Höfn, Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, Vopnafirði og víðar um land. Er það svo að það sé meirihluti fyrir því á Alþingi Íslendinga að setja hundruði starfa í uppsjávarveiðum og vinnslu í hættu með því að standa að viðskiptabanni á Rússland sem eingöngu hefur  þær afleiðingar að það hittur okkur sjálf sem þjóð beint í bakið og stórskaðar hagsmuni veiða og vinnslu, sveitarfélaga og íbúa þeirra sérstaklega.

Það er mín skoðun að haldið hafi verið illa á þessu máli en lausn málsins er í okkar höndum. Hún fellst ekki í því að kasta frá okkur mörkuðum og hundruðum starfa og láta sér svo detta í hug að ríkið beri það tap. Hverslag eiginlega ráðdeild er þetta? Ef það er ekki verkefni þingmanna og Alþingis að vernda störfin í landinu og hagsmuni atvinnulífsins þá er starfið ekki beisið. Miðað við opinbera umræðu er ég eini þingmaðurinn á Alþingi Íslendinga sem hefur mótmælt opinberlega stuðningi okkar við Evrópusambandið og Bandaríkin í þessu máli og ég mun ekki kvika frá þeirri afstöðu Á þeim báti sem ég ræ í þessu máli er lang stærsti hluti þjóðarinnar í áhöfninni.

 

Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.