Bæjarbúar segja sitt álit

Eyjar.net hefur nú mælt vilja bæjarbúa í samgöngumálum, auk traust á þeim sem fara með þau mál – tvö ár í röð. Vonandi geta ráðamenn nýtt sér þetta plagg til ákvarðanatöku um næstu skref í málinu – sem hlýtur að þurfa að fara að taka.

Eitt er nú hvíslað um á götum Vestmannaeyjabæjar. Það er krafa bæjarstjórnar um að smíðatími nýrrar ferju skuli nýttur til lagfæringar á Landeyjahöfn. Það hefur nefnilega ekki verið tekið undir það að neinu leiti af hálfu ríkisins og hafa embættismenn (sérfræðingar) frekar dregið úr því og bent á að það þurfi að rannsaka svæðið í fleiri ár áður en nokkuð er hægt að framkvæma.

Bæjarbúar yrðu e.t.v  rólegri ef lagfæringar á höfninni stæðu fyrir dyrum – því þeir vita sem er, að til að mynda fjölgar ekki dögunum sem dýpkunarskipin ná að athafna sig við Landeyjahöfn – við það eitt að fá nýja ferju.

Á meðan engin trygging er af hálfu ríkisins um að höfnin skuli löguð verðum við íbúar hér í verri málum í siglingum til Þorlákshafnar. Þess vegna eru 9 af hverjum 10 sammála spurningunni: ,,Hversu sammála eða ósammála ertu því að gerðar verði umbætur á Landeyjahöfn til að auka notkunartíma hennar áður en ný Vestmannaeyjaferja verður smíðuð?”

 

Hér má sjá skoðanakönnunina.
 

Nýjustu fréttir

Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.