Barátta framundan í pólitíkinni
18. maí, 2016

Nú í aðdraganda kosninga eru flokkarnir að ákveða hvaða leið skuli valin við að stilla upp á lista sína. Vinstri grænir hafa til að mynda tilkynnt um að stillt verði upp á lista í Suðurkjördæmi. Eyjar.net ætlar hér að rína betur skoðanakannanir og hvaða leið kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að notuð sé til að raða niður á lista flokksins.

Fastlega má búast við prófkjöri á meðal sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Reyndar voru einhverjir innan raða flokksins að tala fyrir tvöföldu kjördæmisþingi, en mun líklegra er að prófkjör verði niðurstaðan. Það er sú leið sem oftast hefur verið farin og talin sanngjörnust. Það skýrist næstkomandi sunnudag þegar aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmí verður haldinn.

Ef skoðaður er núverandi þingmannalisti sjálfstæðismanna í kjördæminu má sjá að baráttan verður hörð. Ragnheiður Elín er oddviti og situr sem ráðherra. Unnur Brá var í öðru sæti í síðasta prófkjöri og Ásmundur Friðriksson kom nýr inn og náði þriðja sætinu. Vilhjálmur Árnason varð svo í því fjórða.

Það er ljóst að það verður á brattann að sækja fyrir flokkinn í næstu kosningum ef miðað er við könnun sem Eyjan.is birti í síðustu viku tapar flokkurinn helmingi þingmanna sinna og fær einungis tvo þingmenn í kjördæminu. Reyndar tapar hinn stjórnarflokkurinn einnig tveimur mönnum en Píratar fá inn fjóra menn – en hafa nú engan.

*Suðurkjördæmi. Mynd/eyjan.is

Ef hinsvegar er skoðuð nýleg könnun Fréttablaðsins sem tekin var þann 9.maí sl. kemur í ljós önnur niðurstaða. Þar voru spurðir 1019 og náðist í 799 manns í heildina og var skiptingin í Suðurkjördæmi svona:

Mynd/vísir.is. Blátt er könnun gerð 9.maí – rautt eru kosningar 2013.

Á þessum könnunum má sjá að fylgi Pírata virkar nokkuð stöðug um þessar mundir og halda þeir inni fjórum mönnum. Það getur á hinn bóginn breyst þegar að listinn hjá Pírötum er kominn fram. Í dag er ekki vitað hvaða fólk mun skipa listann og óvissan því töluverð. Hinsvegar ber könnunum ekki saman er kemur að Sjálfstæðisflokknum. Þar má búast við litlum breytingum á efstu fjórum sætunum. Gætu hugsanlega einhverjir haft sætaskipti og hugsanlega eitt nýtt nafn af efstu fjórum. Samfylkingin missir sinn mann í báðum könnunum en Vinstri-grænir ná hinsvegar inn manni í báðum mælingum. Framsókn tapar 2-3 mönnum í umræddum könnunum og staðan gæti orðið þannig að forsætisráðherra verði hreinlega eini þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi.

Líklegt má telja að baráttan verði því hörð verði prófkjör niðurstaðan hjá Sjálfstæðisflokknum. Sennilegt er að Ragnheiður Elín ætli að reyna að verja oddvita sæti sitt – þrátt fyrir að hún hafi ekki svarað fyrirspurn Kjarnarns um framhaldið. Unnur Brá, Ásmundur og Vilhjálmur hafa þegar gefið út að þau hyggist halda áfram í pólitík. Spurningin er bara hvaða sætum þau sækjast eftir – en sennilegt er að einhver af þeim fari til höfuðs oddvita flokksins, verði prófkjör.

Nýtt fólk?

Svo er það spurningin um nýliða, hvort einhver nýr og ferskur ætli sér að taka slaginn. Oft hefur nafn Elliða Vignissonar komið upp í aðdraganda Alþingiskosninga. Eyjar.net hafði samband við bæjarstjórann vegna þessa.

Ætlar þú að taka slaginn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins til næstu Alþingiskosninga?

,,Fyrir seinustu 4 alþingiskosningar hef ég svarað þessari spurningu eins.  Ég er sáttur þar sem ég er og næg eru verkefnin.  Mér líður vel í því sem ég er að gera og nýt þess að vinna með frábæru fólki að uppbyggingu á stað sem ég elska.” sagði Elliði og bætti við ,,Það er nú líka full fljótt hjá þér að spyrja að þessu þar sem enn hefur ekki einu sinni verið tekin ákvörðun um hvort farið verði í prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í suðurkjördæmi.”

 

Hvaða leið vilja þingmennirnir fara?

Eyjar.net setti sig í samband við alla fjóra þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu og sendi á þá eftirfarandi spurningu:

Hvernig telur þú skynsamlegast að raða upp á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi?

Ragnheiður Elín Árnadóttir: ,,Varðandi það hvernig velja skuli á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar þá verður það ákveðið um næstu helgi og ég tel ekki að við sem erum kjörnir fulltrúar eigum að vera að hafa miklar skoðanir á því fyrirfram, heldur einfaldlega lúta þeirri ákvörðun sem verður ofan á í kjördæmisráðinu.”

Unnur Brá Konráðsdóttir: ,,Ég tel prófkjör vera bestu leiðina. Þá eiga allir skráðir félagar í kjördæminu kost á því að velja listann. Það er lýðræðislegasta aðferðin.”

Ásmundur Friðriksson: “Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengst af treyst kjósendum sínum til að velja lista flokksins fyrir sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Með öflugu prófkjöri hefur flokkurinn náð upp stemningu sem nær oft langt út fyrir fast fylgi flokksins og hefur nýst vel í komandi kosningum. Ég tel að það sé engin ástæða til að taka það val úr höndum flokksmanna og fá það í hendur fáum útvöldum, það er ekki leið Sjálfstæðisflokksins til að treysta kjósendum.”

Vilhjálmur Árnason: ,,Mín hugsjón og prinsip mælir alltaf með prófkjöri. Það eru kostir og gallar bæði við prófkjör og tvöfalt kjördæmisþing sem ég skil vel að fólk vilji velta fyrir sér. Uppstilling á ekki að vera til umræðu innan Sjálfstæðisflokksins.”

 

Samkvæmt heimildum Eyjar.net mun vera þrýstingur á um það innan kjördæmisins að einhverjar breytingar verði á efstu fjórum sætunum, og að inn komi nýr maður. Allar líkur eru á að Ragnheiður Elín sækist áfram eftir oddvitasætinu en búast má við að hún fái samkeppni þ.e.a.s ef það verður prófkjör. Það eru því spennandi tímar framundan í pólitíkinni.

 

*Um könnun Eyjunnar.
Niðurstöðurnar eru samantekt úr Þjóðarpúlsi Gallup á tímabilinu 28. janúar til 28. apríl. Um ræðir netkönnun þar sem úrtakið samanstóð af einstaklingum búsettum á öllu landinu, 18 ára og eldri, sem voru valdir af handahófi úr viðhorfahópi Gallup. Fjöldi svarenda var 9.163.
Á það ber að líta að á ofangreindu tímabili hefur margt gerst. Upplýsingar úr Panama-skjölunum voru opinberaðar sem á endanum urðu til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráðherra og ný ríkisstjórn var mynduð án hans þátttöku. Kannanir undanfarinna vikna sýna sömuleiðis að fylgið hefur verið á hreyfingu. Sjálfstæðisflokkurinn og VG hafa bætt við sig fylgi á síðustu vikum á meðan fylgi Pírata og Framsóknar hefur farið minnkandi. Mikill fjöldi svarenda gefur hins vegar nokkuð nákvæma mynd af stöðu mála.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.