Landeyjahöfn, staðan 22.11.2016
23. nóvember, 2016

Mjög sérstök staða í Landeyjahöfn, en um leið að sjálfsögðu mjög ánægjuleg. Dýpið mikið og gott, enda gengið óvenju vel hjá Galilei 2000 að komast til dýpkunnar, enda ölduhæðin í Landeyjahöfn í haust verið nokkuð hagstæð þó svo að vissulega hafi blásið nokkuð hressilega stundum og ég hef verið spurður út í þessar breytingar á stefni Galilei, en mér er sagt að eftir að skipið lauk dælingu sinni í Landeyjahöfn samkv. samningi, var þeim boðinn sérstakur auka samningur sem gekk út á það að hreinsa betur meðfram hafnargörðunum, en til þess að ná því urðu þeir að breyta rörinu framan á skipinu. 

Að öðru leiti er lítið að frétta af einhverjum hugmyndum um lagfæringar á höfninni, skilst reyndar að varnargarðurinn sem reistur var með Markarfljótinu, sé að miklu leyti horfinn og einhver umræða orðin um að fjarlægja hugsanlega garðinn sem Herjólfur bakkar að þegar hann fer frá bryggju, með það að markmiði að minnka ölduhreyfingu innan hafnarinnar, en mér skilst að sú hugmynd hafi komið frá yfirmönnum Herjólfs.

Veðurspáin framundan er ekkert sérstök, en ef við Eyjamenn verðum heppin með veðurfar í vetur, þá er alveg möguleiki á að það verði óvenju oft fært í Landeyjahöfn í vetur, ef miðað er við hversu gott dýpið er í höfninni. 

Eitt af fjölmörgum verkefnum hafnarvarðar er að leysa og binda Herjólf. Ekki þarf maður að starfa lengur þar til þess að sjá, hvaða vandamál eru þar helst og langar mig að nefna 3 dæmi. 

Ég hef mjög oft tekið eftir því, að þegar bílar koma akandi niður Skildingarveginn (sérstaklega ferðamenn) og sjá bílana byrja að vera að safnast í raðirnar til að fara í Herjólf, þá reyna þeir ótrúlega oft að fara meðfram kaðlinum sem þar er, eða sömu leið og inn að bílaverkstæði Harðar og Matta og reyna síðan að komast meðfram Herjólfsafgreiðslunni að sunnanverðu og vestur inn á svæðið að biðröðinni og eiginlega furðulegt að ekki skuli nú þegar hafa orðið árekstrar þar þegar þeir mæta öðrum bílum sem eru að koma réttu leiðina. Ástæðan fyrir þessu er sú að merkingarnar sem sýna hvaða leið á að fara, sjást ekki fyrr en komið er inn í beygjuna til austurs, en að mínu viti ætti ekki að vera mikið mál að leysa þetta með því að setja áberandi skilti við kaðal vegginn, sunnan við bílaraðirnar. 

Annað atriði sem mig langar að nefna tengist einnig merkingum, en fyrir nokkru varð ég vitni að því þegar rúta merkt Norðurleiðum keyrði upp undir ranann þar sem fólk gegnur um borð í Herjólf með töluverðu tjóni, og mér skilst á öðrum hafnarverðum að þetta gerist nú bara reglulega. Þarna þyrfti virkilega að bæta úr merkingum og aðvörunar skiltum.

Þriðja atriðið sem mig langar að nefna fjallar um tímasetningar á ferðum Herjólfs þegar ferðirnar færast úr Landeyjahöfn í Þorlákshöfn. Við Eyjamenn sem förum yfirleitt akandi vitum að við fáum skilaboð ef breytingar verða, en þó ég hafi aðeins starfað þarna á þriðja mánuð, þá hef ég ótrúlega oft séð fólk koma hlaupandi niður á bryggju á slaginu 8, haldandi það að skipið fari ekki fyrr en hálf níu. Þessu væri að mínu viti mjög áuðvelt að breyta einfaldlega með því að láta Herjólf alltaf fara á sama tíma í sínar fyrstu ferðir. Við vitum það að Herjólfur þarf að fara kl 8 til þess að halda áætlun, en hvers vegna hann fer ekki fyrr en 8:30 þegar hann fer í Landeyjahöfn, hef ég ekki hugmynd um, en gaman væri ef einhver vissi svarið. 

Varðandi nýsmíðina, þá hef ég lítið heyrt annað en bara það sem komið hefur fram í fjölmiðlum að undanförnu að það sé verið að semja við pólverja um að smíða ferjuna. Það sem ég hefði hins vegar viljað að gerðist á allra næstu árum, miðað við stöðuna í dag, það er að fundinn yrði rekstrar grundvöllur fyrir því að halda núverandi ferju um ókomin ár, enda hefur hún reynst okkur vel. Veit reyndar að það er búið að lofa okkur að halda henni í fyrstu 2 árin eftir að nýja ferjan kemur, en allar spár um þróun ferðamennskunnar benda til þess að ferðamönnum muni bara fjölga. Það ásamt að öllum líkindum meiri gámaflutningi milli lands og eyja ætti að mínu viti klárlega að geta skapað fleiri verkefni, auk þess að við gætum þá gripið til hennar þegar við þyrftum.

Að lokum verð ég að hafa eftir brandara frá vini okkar Jógvan hinum færeyska, sem mér skilst að hafi sagt í heitu pottunum fyrir nokkru síðan í Eyjum. Skrítnir þessir færeyingar, þeir vilja bara grafa göng í allar áttir á meðan Eyjamenn leysa þetta einfaldlega með batterís ferju. 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.