Besti vinur mannsins er klárlega hundurinn, en jólin í ár eru 4 jólin okkar eftir að við fengum okkur hund. Ég er stundum spurður að því, af hverju hundurinn heitir Svenni, og svarið er það, að mið dóttir okkar átti vin sem hét Svenni sem lést nokkrum dögum áður en við fengum hundinn og hún fékk að ráða nafninu. Kannski ekki beint hundanafn en Svenna er alveg sama.
Það hafa margar kvikmyndir verið gerðar um hunda og öll þekkjum við sennilega nokkrar, en fyrir nokkrum árum var gerð mynd um hundinn Hatchi, sem er sannsöguleg, en saga Hatchi hófst í Japan árið 1936 þegar prófessor í skóla einum í litlu bæjarfélagi í Japan fékk sér lítinn hund sem hann skírði Hatchico. Á hverjum degi tók prófessorinn Hatchi með sér í vinnuna og lét hann bíða eftir sér við gosbrunn sem var fyrir framan skólann. Tveimur árum síðar var prófessorinn bráðkvaddur og Hatchi þar með heimilislaus, en það breytti engu fyrir hann, hann mætti á hverjum degi við gosbrunninn og beið eftir húsbónda sínum. Bæjarbúar tóku eftir þessu og þóttu mikið til um tryggð Hatchi og fóru að færa honum mat við gosbrunninn. Þannig gekk þetta í 9 ár, eða þar til að Hatchi og húsbóndinn sameinuðust loksins í næsta lífi.
Bæjarbúum þóttu þetta það merkilegt að þeir slógu saman í styttu af Hatchi sem enn stendur við þennan gosbrunn í þessu litla bæjarfélagi í Japan.
Við mannfólkið getum margt lært af hundunum okkar og við fjölskyldan höfum farið í gegn um þetta allt saman með honum Svenna okkar. Sorgina þegar við förum út og hann fær ekki að koma með og svo ofsa kætina þegar við komum aftur heim, eindreginn vilja hans til að sníkja af okkur mat þegar hann finnur lykt af einhverju sem hann langar í, eindreginn brotavilja hans þegar hann reynir að laumast til að merkja skóna okkar, svo hann finni okkur nú alveg örugglega aftur ásamt kröfunni um það, að hann vilji fá að sofa uppí alveg sama hvað. Mikinn áhuga hans á að hrekja alla aðra hunda í burtu með því að gelta á þá og hvernig hann dansar um af kæti þegar hann veit að við erum að fara með hann í göngu. Já, við getum lært margt af hundunum okkar.
Góðir Eyjamenn og aðrir landsmenn, innilega gleðilega hátíð frá okkur og Svenna.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.