Hrós vikunnar fær bæjarstjórn Vestmannaeyja fyrir skjót viðbrögð við upprifjun Eyjar.net um ályktun bæjarstjórnar frá í janúar 2016 um hvað má betur fara í sjósamgöngum milli lands og eyja.
Bæjarstjórn tókst að finna líflínu í útboðsgögnum ríkisins sem sneru að smíði og rekstur ferjunnar til 12 ára. Ekki verður betur séð en að þau útboðsgögn séu úrelt, þar sem farin var sú leið að semja einungis um smíði skipsins. Reksturinn verður því boðin út sér – og þarfnast því væntanlega nýrra útboðsgagna.
Máli mínu til stuðnings vil ég benda á það sem bæjarfulltrúinn Trausti Hjaltason segir á facebook-síðu sinni um málið af sama tilefni og hann ásamt öllum öðrum bæjarfulltrúum sendu frá sér yfirlýsingu um málið. Þar segir hann „Ég skal viðurkenna að það er margt sem maður mundi vilja sjá enn betra en þetta er klárlega mikil bragarbót ef það verður staðið við þetta allt í útboðsgögnum.“
En ábending Eyjar.net sneri ekki að því sem gert verður þegar að ný ferja kemst í notkun. Ábendingin snérist um það hvað af þessu hefði mátt vera búið að hrinda í framkvæmd nú þegar. Það þarf til að mynda ekki að bíða eftir nýrri ferju til að lækka fargjöldin til Þorlákshafnar.
Það þarf ekki að bíða eftir nýrri ferju til að fjölga ferðum þegar siglt er í Landeyjahöfn, nú eða sigla oftar á helgidögum. Því má breyta strax.
Það er líka merkilegt að lesa yfirlýsingu bæjarstjórnar þar sem fram kemur að í seinasta útboði hafi verið gerð krafa um að bókunarkerfið sé vandað og að hægt sé að vinna beint á það í gegnum netið.
Þegar og ef að þetta verður allt að veruleika sem fram kemur í svari bæjarstjórnar verður liðið á þriðja ár frá ályktun bæjarstjórnar um málið – og sveitarstjórnarkosningar um garð gengnar. Ja, góðir hlutir gerast hægt en væri ekki a.m.k. ráð að krefjast þess að þegar verði byrjað að hefja lagfæringar á bókunarkerfinu þannig að það verði nothæft. Í því sambandi er hægt að benda á að fyrirtæki hér í Eyjum, Smartmedia, hefur mikla reynslu af sölukerfum á netinu.
Þann 26. janúar var undirritaður gestur á fundi bæjarstjórnar. Þar var til umræðu einu sinni sem oftar samgöngumál. Flestir bæjarfulltrúar tjáðu sig og að endingu var samþykkt bókun. Ekki minntist einn einasti bæjarfulltrúi á þessi stóru tíðindi sem bæjarstjórn hefur nú opinberað. Að allar þessar óskir bæjarstjórnar verði uppfylltar með komu nýrrar ferju. Af hverju var það ekki upplýst þá?
Þar var talað um að bæta þyrfti upplýsingagjöf til bæjarbúa og sagði Páll Marvin að sjálfskipaðir sérfræðingar hafi haldið uppi harðri gagnrýni á samgöngumálin. Minnihlutinn vildi fá borgarafund um samgöngur en sú tillaga hlaut litlar undirtektir meirihlutans.
Kveikjan að Hvísli Eyjar.net var grein bæjarstjóra frá 30. janúar sl. undir fyrirsögninni „Kostnaður heimila í Vestmannaeyjum er fráleitt hár“. Í niðurlagi greinarinnar segir bæjarstjóri: „Þjóðvegurinn milli lands og Eyja liggur í dag um Landeyjahöfn. Það er sanngjörn og eðlileg krafa Eyjamanna að þegar þjóðvegurinn til Vestmannaeyja (Landeyjahöfn) er lokaður og farið er lengri og erfiðari hjáleið um Þorlákshöfn þá sé ekki lagt aukalegt gjald á notendur heldur gildi að fullu sú gjaldskrá sem gildir fyrir Landeyjahöfn.“
Athugið að í þessari grein kemur ekki stafur um það að þetta standi til bóta eftir eitt og hálft ár líkt og nú er komið fram í úreltu útboðsgögnunum sem ekki virðast aðgengileg. Af hverju hafði hann ekki frumkvæði af því að greina frá jafn mikilvægu máli og nú virðist komið á daginn?
Grein bæjarstjórnar vekur óneitanlega upp fleiri spurningar sem þarf að fá svör við. Varðandi fargjöld nýju ferjunnar stendur „Vissulega er gjaldið hærra en ásættanlegt er og þarf að ná fram lækkun á því eða í öllu falli að afsláttarfargjöld heimamanna tryggi þeim hagstæðari fargjöld.“
Skv. hinum úreltu útboðsgögnum þá eiga fargjöld einstaklinga í Landeyjahöfn að hækka um tæplega 30%. Flutningur á bifreiðinum virðist hækka um ca. 50% miðað við núverandi gjaldskrá. Afsláttur stærri notenda (einingakort) virðist einnig eiga að hækka.
Þá skal einnig á það bent að verið er að bera saman gjöld sem eru nú í gildi við verð í útboði fyrir tæpu ári síðan. Ef raunin verður sú að Landeyjahöfn verði 80-85% allra ferða sem og að ætla má að talsverð fjölgun verði á farþegum og bifreiðum frá því sem nú er, þá er líklegt að kostnaður vegna aukinnar þjónustu verði greiddur af farþegum sjálfum, þegar að upp er staðið.
Það var kannski ekki það sem barist var fyrir eða hvað? Enn er þó með öllu óljóst hvað af baráttumálum bæjarstjórnar náist í gegn og má segja að sem betur fer er enn ekki búið að skrifa undir umrædd útboðsgögn – því margt má bæta.
Eyjar.net hafa þó náð þeim árangri að sameina meiri- og minnihluta bæjarstjórnar undir merkjum úreltra útboðsgagna. Sameinuð bæjarstjórn lýsir því jafnframt yfir að hún sé hvergi södd í baráttu sinni fyrir hagsmunum bæjarbúa. Í þessu samhengi er vert að rifja upp þau rök sem notuð voru að nýsmíðin á að vera mun hagkvæmari í rekstri auk þess sem ferðum til Þorlákshafnar á að snarfækka. Því er illskiljanlegt að hækka þurfi fargjöldin þetta mikið.
Í þessum skrifum Eyjar.net var einungis um upprifjun að ræða á einu af okkar helsta baráttumáli. Skrifari telur sig ekki hafa farið á nokkurn hátt vísvitandi með rangt mál i umræddri grein – líkt og ýjað er að í svari bæjarfulltrúanna. Stærstur hluti greinarinnar var endurbirt ályktun bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Undirritaður hafði ekki og hefur ekki enn fengið umrædd útboðsgögn í hendur en fékk að glugga í þau eftir svar bæjarstjórnar á skrifstofu bæjarstjóra. Að lokum skal á það bent, að allt efni sem birtist á Eyjar.net og er ekki skrifað undir nafni, er á ábyrgð ritstjóra.
Tryggvi Már Sæmundsson
Ritstjóri Eyjar.net
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst