Minning: Sirrý í Gíslholti

Þegar sólin stígur upp yfir jökulinn og geislar hennar glæða Eyjarnar lífi, kviknaði á deginum. Grænahlíðin og austurbærinn, veröld sem var, vaknaði til lífsins og öldurnar sem í milljónatali svella að brjósti Eyjanna austur á Urðum í taktföstum dansi við klappirnar var undraveröld. 

Leiksvæði okkar peyjanna í austurbænum. Í Grænuhlíðinni reis upp önnur sól á hverjum degi, vestast í götunni í húsi númer 3, hún Sirrý í Gíslholti. Það geislaði af henni krafturinn og gleðin sem gerðu hana svo stórfenglega og sjálfsagða og hluta af lífi okkar og æsku í austurbænum. Sirrý hafði tök á okkur ólátabelgjunum sem vorum eins og maurar á ferð og flugi út um allt með tilheyrandi látum, braki og brestum.

Ég man enn eftir henni úti á palli með stlæðu á höfðinu í rósóttum Hagkaupsslopp kallandi á okkur og reyna að ná tökum á ástandinu. Þá voru þeir ekki ónýtir í slíkum félagskap bræðurnir á Grænuhlíð 3, Óli Kristinn, Hallgrímur og Sigurður Hjálmar. Þeir þrír voru á við meðal íbúðahverfi í gauragangi og uppátækjum en í dag væri slíku hverfi lokað fyrir almenningi til að steypa alla í sama mót greininga og aðgerðarleysis.

Það kom sér vel að Sirrý hafði stóra og fallega rödd sem heyrðist víða í hverfinu þegar nöfn sonanna hljómuðu um allt og allir heyrðu nema þeir. En undir niðri skildi hún þetta allt svo vel og brosið hennar fallega bræddi hvern meðal peyja eins og smjör. Hún bjó fjölskyldunni heimili í túnjarði æskuheimilisins í Gíslholti og það var stutt að hlaupa yfir á Landagötuna í fjárhúsin eða kaffi hjá foreldrum hennar.

Sirrý hljóp við fót yfir túnið og hallaði undir flatt á göngunni eins og hún væri að berjast á móti austan brælunni. Umhverfið og aðstæðurnar í Eyjum höfðu slík mótandi áhrif á fólk. Hún lét aldrei stoppa sig, var baráttukona og gallharður Týrari, ein af listrænu stjórnendum þrettándans í Eyjum í áratugi.

Kjallarinn á Grænuhlíðinni var fæðingastaður tröllanna og þar glæddi Sirrý baujur, belgi og netahringi lífi sem gerðu augu barna að undirskálum og fullorðna orðlausa af gleði. Þannig var heimatilbúin gleði neistinn í lífi Sirrýjar í Gíslholti sem hún smitaði í okkar peyjanna og við búum að. Það er kannski núna sem maður sér þessa mynd fullgerða, þegar Sirrý hefur lokið dagsverki sínu fyrir fjölskylduna og samfélagið í Eyjum. Hún var þannig kona að skarð hennar verðu ekki fyllt.

En minningin um Sirrý í Gíslholti er þeim mun sterkari fyrir okkur sem nú erum smátt og smátt að tínast úr þeirri veröld sem var og við tilheyrðum og kveðjum. Sirrý er eftirminnanlegur persónuleiki og allar heimsóknir til hennar á Birkihlíðina og síðustu árin á Hraunbúðir hafa skilið eftir sig hlýju og góðar minningar sem við eigum saman.

Sirrý hefur leyst landfestar og róið á önnur mið þar sem hún verður áfram öflugur liðsmaður í því sem þarf að græja og gera. Vaskleg framganga og dugnaður mun fylgja henni og minningu hennar alla tíð. Sól Grænuhlíðarinnar er gengin til viðar en áfarm halda öldurnar að svella á brjóstum Eyjunnar og taktfast klappið ómar fyrir minningu Sirrýjar í Gíslholti. Í þakklætisskyni fyrir það sem hún gerði fyrir okkur og samfélagið allt.

Ég votta Tryggva og fjölskyldunni allri samúð.

 

Ásmundur Friðriksson.

Nýjustu fréttir

Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.