Friðrik Páll Arngrímsson, slökkviliðsstjóri fór yfir í löngu máli í gær hvað honum finnst um staðsetningu nýrrar slökkvistöðvar. Í máli hans kom fram að honum þótti þær myndir sem Vestmannaeyjabær hafði látið vinna til að kjörnir fulltrúar áttuðu sig betur á hvernig húsið félli að umhverfinu, ekki nógu góðar.
Hann sagði orðrétt í sínum pistli:
„Ég skal líka vera fyrstur til að samþykkja það að þær teikningar sem í framhaldinu fóru í loftið http://eyjar.net/…/hugmyndir-ad-nyrri-slokkvistod-vid-long…/ eru mjög villandi fyrir þá sem ekki kunna að lesa rétt út úr þeim og gefa á engan hátt rétta mynd af því húsnæði sem hugmyndin er að þarna rísi, en þarna er um að ræða svokallaða massa teikningu sem einungis sýnir gróflega húsnæðið og skuggamyndun af því í umhverfinu. Það er því algjörlega fráleitt að halda það að svona verði endanlegt útlit hússins þ.e. stór, ljótur, grár kassi. Einfaldast og eðlilegast hefði verið að biðja um nánari útskýringar og eða betri teikningar til að átta sig betur �� umfangi og útliti.”
Nú er það svo að þegar mál eru til umfjöllunar hjá bæjaryfirvöldum kalla fjölmiðlar oftar en ekki eftir öllum þeim gögnum sem hægt er að fá. Þau gögn eru svo oftar en ekki birt, svo að bæjarbúar geti áttað sig á hvaða breytingar eru í bígerð. Fjölmiðlar sem slíkir fara að öllu jöfnu ekki fram með þær kröfur að gögnin séu ekki nægjanlega vel unnin og bíða jafnvel með birtingu á þeim fram yfir ákvarðanatöku fagráða eða bæjarstjórnar. Ef svo væri væru fjölmiðlar ekki að sinna skyldu sinni að upplýsa fólk um mál sem snerta þau beint eða óbeint á viðræðustigi.
Það sem undirritaður saknaði í pistli slökkviliðsstjórans, var að hann kynnti nýjar teikningar. Að hann kæmi fram með það sem hann gagnrýndi fjölmiðilinn fyrir. Ekki er undirritaður að taka neina afstöðu um hvar umrædd stöð skuli rísa, heldur að benda á það mikilvægi að fjölmiðlar séu á tánum er kemur að málum sem snúa að bænum okkar og bæjarbúum.
Tryggvi Már Sæmundsson
Ritstjóri Eyjar.net
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst