Kvikmyndahátíð verður á þjóðlegu nótunum í dag, sunnudag. Þá verður sýnd Síðasti bærinn í dalnum, fyrsta íslenska leikna kvikmyndin frá 1950. Myndin er byggð á samnefndri sögu Lofts Guðmundssonar rithöfundar og kennara í Vestmannaeyjum.
Sýnd verður endurbætt útgáfa í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands.
Margir sem komnir eru vel yfir miðjan aldur eiga góðar minningar frá því þeir sáu Síðasta bæinn í dalnum sem frumsýnd var 11. mars 1950. Það var Óskar Gíslason sem gerði myndina eftir sögu Lofts Guðmundssonar, rithöfundar og kennara í Vestmannaeyjum. Efniviður myndarinnar er í anda gömlu þjóðsagnanna, sígilt ævintýri um baráttu góðs og ills. Í sveit einni hafa allir bændur flust á brott vegna ofsókna trölls og tröllskessu.
Bóndi einn situr þó sem fastast með fjölskyldu sinni þar sem amman á bænum á töfrahring sem verndar íbúana frá öllu illu. Tröllin reyna að stela hringnum af henni og þá fer af stað atburðarás þar sem ýmsar vættir koma við sögu, meðal annars álfadrottning og dvergur sem getur gert sig ósýnilegan.
Síðasti bærinn í dalnum hefur elst vel og verður sýnt ný og endbætt útgáfa af myndinni. Söguþráðurinn gæti verið sóttur í Hringadróttinssögu eða Krúnuleikana, Game of Thronnes. Átökin eru þau sömu. Er tilvalið fyrir þá eldri að skreppa í Bíóið og rifja upp gömlu góðu dagana og fyrir unga fólkið og krakka að kíkja á íslenska sagnahefð sem þarna er í fyrsta skipti færð upp á hvíta tjaldið.
Kvikymyndin er sýnd í dag, sunnudaginn 12. maí 2019, kl. 16:00 til 17:30.
Vestmannaeyjabær býður á allar þessar sýningar í tilefni aldarafmælis kaupstaðarins.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst