Eins og Eyjafréttir greindu frá í gærkvöldi, var aðalkjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins frá 21. desember felldur í kosningu hjá Drífandi Stéttarfélagi. 96% félagsmanna sem tóku þátt í kosningunni, greiddu atkvæði gegn samningnum en aðeins 4% með honum. Á kjörskrá voru 566 en 249 greiddu atkvæði eða 44% félagsmanna og telst kosningin því gild.