Í vikunni verða foreldrafundir í GRV þar sem farið verður yfir helstu niðurstöður úr síðustu könnun í Olweuaráætluninni. Könnunin er lögð fyrir árlega og eru niðurstöður hennar leiðarljós okkar í vinnunni í skólanum. Starfsfólk skólans hefur fjallað um niðurstöðurnar og tóku kennarar og aðrir starfsmenn sem tengjast hverjum árgangi, ákvarðanir um hvaða áherslur verða lagðar á bekkjarfundum og annarri vinnu sem miðar að því að bæta samskipti enn frekar og auka skilning nemenda á einelti.
Hugmyndafræði áætlunarinnar felur það í sér að það er á ábyrgð fullorðna fólksins að börnunum líði vel í skólanum. Við tökum þetta mjög alvarlega. �?að er marg sannað að þegar fullorðna fólkið gengur í takt þá leysast málin oftast fljótt og örugglega. �?að á við um fullorðna fólkið bæði innan og utan skólans. Afstaða foreldra til eineltis almennt og viðbrögð þegar einelti kemur upp, hvort sem þeirra barn er þolandi, gerandi eða hluti bekkjar eða hóps, getur skipt sköpum um farsæla lausn.
�?g hef heyrt �??þetta er alltaf það sama�??. Sem er rétt að mörgu leyti, við erum að fjalla um einelti, birtingarmyndirnar eru svipaðar og aðgerðirnar sem við grípum til eru það einnig. En við erum að fjalla um samskipti og líðan nemenda sem er breytilegt.
Síðustu ár hafa foreldrar um 10% nemenda mætt á fundina. �?að væri ótrúlega gaman að geta hækkað þá tölu. �?g veit að umfjöllunarefnið er ekki skemmtiefni, einelti er alvörunnar mál. �?g veit að foreldrum er ekki sama um þetta málefni og sumir hreinlega komast ekki á fundina en ég er alveg viss um að fleiri geta mætt en hefur verið.
Boðið er upp á tvo fundi, sem verða sams konar, þannig að foreldrar velja þann tíma sem þeim hentar. Fyrri fundurinn verður í sal Hamarsskóla þriðjudaginn 4. febrúar í hádeginu kl. 12.10-12:55 og sá seinni á fimmtudaginn 6. febrúar í sal Barnaskólans kl.17:30-18:15.
Hlakka til að sjá sem flesta.
Helga Tryggva, verkefnisstjóri Olweusaráætlunarinnar í GRV.