Karlalið ÍBV tók á móti Val í lokaumferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með sex marka sigri Vals.
Jafnræði var með liðum í upphafi leiks og skiptust liðin á að vera með forystuna. Valsmenn voru yfir með einu marki, 8-9, eftir stundarfjórðung. Valsmenn náðu tveggja marka forystu, 12-14, þegar sex mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. ÍBV komst yfir þegar skammt var eftir en Valsmenn jöfnuðu og var staðan jöfn, 16-16, í hálfleik.
Seinni hálfleikur var jafn framan af eða þangað til Valsmenn tóku að skríða fram úr ÍBV og voru komnir með fjögurra marka forystu, 22-26, þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Valsmenn komust fimm mörkum yfir þegar sjö mínútur voru til leiksloka. Valur kláraði leikinn svo nokkuð örugglega og unnu sex marka sigur. Lokatölur leiksins 28-34.
Kristófer Ísak Bárðarson var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk. Arnór Snær Óskarsson var markahæstur í leiknum með 11 mörk. Morgan Goði Garner varði sjö skot í marki Eyjamanna.
Mörk ÍBV: Kristófer Ísak Bárðarson 8 mörk, Sveinn José Rivera 5, Elís Þór Aðalsteinsson 4, Daníel Þór Ingason 3, Nökkvi Snær Óðinsson 3, Antons Frans Sigurðsson 2, Ívar Bessi Viðarsson 2, Heimir Halldór Sigurjónsson 1.
Eyjamenn voru án fjölda leikmanna í kvöld en Andri Erlingsson, Petar Jokanovic, Dagur Arnarsson og Haukur Leó Magnússon voru frá vegna meiðsla. Ísak Rafnsson og Sigtryggur Daði Rúnarsson hafa ekki verið leikfærir í einhvern tíma. Hákon Daði Styrmisson var heldur ekki með ÍBV í kvöld.
Með sigrinum tryggðu Valsmenn sér deildarmeistartitilinn 2026 og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Eyjamenn enda í fjórða sæti deildarinnar og fá heimaleik gegn KA í 8-liða úrslitum.
ÍR féll úr Olís deildinni í kvöld eftir tap gegn FH og þá fer Stjarnan í umspil um hvort liðið leiki í Olís deildinni að ári eða ekki. Nýliðarnir, Selfoss og Þór eru bæði komin í sumarfrí.
Úrslitakeppnin hefst 25. mars og hægt er að sjá dagskrána í 8-liða úrslitum hér að neðan:
Valur – HK
FH – Fram
Haukar – Afturelding
ÍBV – KA
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.