Aðventukvöld ÁtVR í Bústaðakirkju - myndir
Vinir og vandamenn fluttu gömul og ný lög, m.a. eitt sjaldheyrt lag eftir Oddgeir Kristjánsson.

Aðventukvöld Átthagafélags Vestmannaeyinga Reykjavík var haldið í Bústaðakirkju í gærkvöldi. Þar komu margir Eyjamenn saman og áttu ánægjulega kvöldstund í aðdraganda jóla. Bræðratungbandið, þau Jónas Þórir píanóleikari, Rúnar Ingi Guðjónsson bassaleikari og formaður Átvr ásamt söngvurunum Guðrúnu Erlingsdóttur og Þorsteini Lýðssyni leiddu viðstadda í almennum söng. Þá flutti séra Þorvaldur Víðisson jólahugvekju og jólaguðspjallið var lesið.

Alþýðusönghópurinn Vinir og vandamenn, sem tengist hetjum Eyjalaganna, þeim Oddgeiri Kristjánssyni og Ása í Bæ, með ýmsum hætti flutti síðan nokkur Eyjalög. Þeirra á meðal var lag Oddgeirs við ljóð Arnar Arnarsonar, Í bíl, sem grafið var úr gleymsku. Góður rómur var gerður að flutningi þeirra og margir tóku undir í Eyjalögunum.

Í lokin var viðstöddum boðið upp á heitt súkkulaði, kökur og konfekt í veitingsal kirkjunnar. Fólk gæddi sér á veitingunum og hlýddi á nokkrar sögur úr endurminningum Óla Gränz.

Hér sést hluti gesta sem nutu veitinga í lok aðventukvöldsins.
Bræðratungubandið leiddi gesti í almennum söng.
Séra Þorvaldur Víðisson flutti jólahugvekju.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.