Aflaði mest allra netabáta
kap_gamla
Kap II aflaði mest allra netabáta landsmanna á árinu 2023. Eyjar.net/Tryggvi Már

Kap II VE-7 aflaði mest allra netabáta landsmanna á árinu 2023 og munaði umtalsverðu á Kap og Bárði SH-81 sem var næstaflahæstur netabáta. 

Á árinu 2022 var Bárður aflahæstur netabáta en Kap II kom þar á eftir en á nýliðnu ári höfðu bátarnir sem sagt sætaskipti. Í næstu þremur sætum eru sömu bátar í sömu röð 2022 og 2023, segir í frétt á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Vinnslustöðin á Kap II, reyndar eina bátinn sem gerður er út á netaveiðar frá Vestmannaeyjum og í þeim efnum útgerðarsögu Eyjanna og landsins alls er sannarlega af sem áður var.

Vinnslustöðin gerði líka út Brynjólf VE á net en lagði honum á árinu 2022 og seldi til niðurrifs í Belgíu. Brynjólfur var engu að síður í 7. sæti á lista yfir aflahæstu netabáta árið 2022 og lauk þar með sögu sinni á Íslandsmiðum.

Kap II man tímana tvenna

„Kap VE II er langelsta skipið í flota Vinnslustöðvarinnar og hefur frá árinu 2017 verið á netaveiðum á okkar vegum á vetrarvertíðum. Skipið á þá sögu í grófum dráttum að vera smíðað í Stálvík 1967 og hét upphaflega Óskar Magnússon AK-177,“ segir Sverrir Haraldsson, sviðstjóri botnfiskssviðs Vinnslustöðvarinnar.

„Árið 1976 keypti Bessi sf. skipið til Vestmannaeyja, félag Einars Ólafssonar skipstjóra og Ágústs Guðmundssonar vélstjóra. Í apríl 1987 eignaðist Fiskimjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum Kap, fyrirtæki sem ásamt fleirum sameinuðust síðar undir merkjum Vinnslustöðvarinnar.

Kap VE á sér fortíð á síldveiðum og loðnuveiðum og skipið sjálft hefur tekið ýmsum breytingum í tímans rás, til að mynda verið bæði lengt og fengið nýja yfirbyggingu.

Sjálft útgerðarmynstrið hefur ekki síður tekið breytingum. Netabátar voru áður gerðir út í tugatali frá Vestmannaeyjum en nú er Kap hér ein eftir á netum.

Sömu sögu er að segja annars staðar á landinu. Þar er helst að nefna  nokkra staði á Suðurnesjum, Snæfellsnesi og á Norðurlandi þar sem netaveiði er enn stunduð í einhverjum mæli.“

Nánar má lesa um afla netbáta í fyrra hér.

Nýjustu fréttir

Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.