Framherjinn Ágúst Leó Björnsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍBV en fotbolti.net greinir frá þessu.
Ágúst Leó er tvítugur og var á láni hjá Aftureldingu í 2. deildinni sl. sumar en hann var þá samningsbundinn Stjörnunni. Skoraði Ágúst 13 mörk í 20 leikjum og var valinn besti leikmaður Aftureldingar.
Ágúst er fyrsti leikmaðurinn sem ÍBV fær í sínar raðir í vetur en nokkrir leikmenn hafa horfið á braut frá síðasta tímabili, þeir Alvaro Montejo Calleja, David Atkinson, Hafsteinn Briem, Jónas �?ór Næs, Mikkel Maigaard Jakobsen og Pablo og Renato Punyed.